Skoðun

Svar við brigslum

Jónas Fr. Jónsson skrifar
Doktorsnemi skrifaði grein í Fréttablaðið um nýlega ráðningu á forstjóra Bankasýslu ríkisins og taldi hana minna á ráðningu mína sem forstjóra Fjármálaeftirlitsins síðsumars 2005, sem er alrangt. Heimildarvinna höfundar, Bjarna Torfasonar, er rýr, enda styðst hann við eina heimild, svokallaðan siðfræðikafla í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Þar felldu þrír einstaklingar sleggjudóma yfir fjölda einstaklinga án þess að sýna þá kurteisi eða manndóm að leita andmæla fyrst. Ekki gerði höfundur tilraun til að afla sér upplýsinga hjá mér eða þeim sem tóku ákvörðun um ráðninguna, þ.e. fyrrverandi stjórn Fjármálaeftirlitsins.

Fagleg ráðningVið ráðningu í starf forstjóra Fjármálaeftirlitsins sumarið 2005 var beitt faglegu ráðningarferli sem stjórnað var af ráðningafyrirtæki. Fleiri umsækjendur voru um stöðuna og enginn þeirra gerði athugasemdir eftir ráðningu mína. Engar athugasemdir voru heldur gerðar opinberlega við ráðninguna.

Menntun og reynslaÍ grein Bjarna kemur fram að ég starfaði áður sem framkvæmdastjóri Innra markaðssviðs Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA), þó að höfundur telji það litlu skipta. Á Innra markaðssviði ESA störfuðu um 25 sérfræðingar frá 8 löndum og undir starfsemi þess féllu m.a. málefni fjármálaþjónustu og fjármálamarkaðar. Þannig stýrði ég í tæp 5 ár eftirliti með málefnum fjármagnsmarkaða á Íslandi, Noregi og Liechtenstein.

Áður en ég var ráðinn sem framkvæmdastjóri hjá ESA, í opnu ráðningaferli þar sem umsækjendur gátu komið frá öllu EES-svæðinu, starfaði ég sem sérfræðingur hjá stofnuninni varðandi málefni verðbréfamarkaða og frjálsra fjármagnsflutninga.

Þar á undan starfaði ég bæði sem lögfræðingur og aðstoðarframkvæmdastjóri Verslunarráðs Íslands og sinnti m.a. verkefnum tengdum fjármálamarkaðnum og hafði aðkomu að löggjöf um þann markað.

Ég hef lokið embættisprófi í lögfræði, meistaraprófi í lögfræði frá Cambridge-háskóla og MBA-gráðu frá Vlerick Leuven Gent Management School, auk þess að vera með verðbréfamiðlunarpróf.

Að síðustu er það ágætur mælikvarði á þekkingu og reynslu ef ótengdir aðilar vilja greiða fyrir þjónustu. Í dag rek ég lögmannsstofu þar sem viðskiptavinir eru einkum aðilar á fjármagnsmarkaði.

NiðurlagHér hefur verið svarað tilefnislausum brigslum Bjarna Torfasonar. Þeir sem vilja skrifa málefnalega um íslenskan fjármálamarkað ættu að afla sér sjálfstæðra heimilda og ekki að líta á rannsóknarskýrsluna sem trúarrit, enda liggur fyrir sú niðurstaða Hæstaréttar að skýrslan er ekki sönnunargagn (mál 561/2010). Það kann að vera erfitt fyrir Bjarna, sem var starfsmaður rannsóknarnefndarinnar.




Skoðun

Sjá meira


×