Segir Morgunblaðið draga rangar ályktanir af gögnum 8. september 2011 11:35 Katrín Júlíusdóttir.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra sagði ekkert standa uppi á stjórnvöld á kaupum Magma á HS Orku en þar svaraði hún fyrirspurn Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í morgun. Málið snýst um grein Morgunblaðsins þar sem því er haldið fram að Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hafi beitt áhrifum sínum í ágúst 2009 til þess að ekkert yrði af byggingu álvers Norðuráls í Helguvík. Ragnheiður Elín spurði iðnaðarráðherra hvort hún vissi af þessu meinta baktjaldamakki og hvort henni fyndist afskipti Steingríms eðlileg. „Þarna var verið að vinna drög að samningum, þetta var ekkert baktjaldamakk," svaraði Katrín og benti á að gögnin vísuðu til þess þegar ríkið, ásamt sveitarfélögum og lífeyrissjóðum hugðist kaupa hlut í HS Orku. „Um það fjölluðu drögin. Það er ekkert óeðlilegt að menn setji saman framtíðarsýn hvað það varðar - og það þarf ekki að vera til höfuðs framtíðarinnar," sagði Katrín. Hún segir gögnin sem liggja fyrir í grein Morgunblaðsins, ágæta samantekt, en þar séu þó dregnar rangar ályktanir sem þurfi að skoða samhliða fjölmiðlaumfjöllun á sínum tíma. „Ég lít svo á að í þessari ágætu samantekt séu dregnar rangar ályktanir sem enginn skammist sín fyrir að líti dagsins ljós," sagði Katrín meðal annars. Óundirbúnar fyrirspurnir hófust á Alþingi klukkan hálf ellefu í morgun og var þingmönnum tíðrætt um fjarveru fjármálaráðherra sem var ekki í þingsal. Hann er staddur erlendis. Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins hóf síðan fyrirspurnar tímann og spurði Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra út í frétt Morgunblaðsins frá því í dag er snýr að Steingrími J. Sigfússyni og kaupum Magma á HS Orku. Sagði hann ljóst að samkvæmt því sem þar kæmi fram hefði Steingrímur lagt blessun sína um að Magma fengi að kaupa helmingshlut í HS Orku á fyrstu stigum málsins. Síðan hefðu hver nefndin á fætur annarri verið sett á laggirnar. Í því Írafári hefði Umhverfisráðherra komið inn í umræðuna og sagt að pólitískur vilji ríkisstjórnarinnar væri alveg skýr. Svandís sagðist ekki hafa lesið greinina og Bjarna væri í raun vorkunn að byggja fyrirspurnina á þeim forsendum. Hún sagði það sinn vilja að vinda ofan af einkavæðingu HS Orku. Þingmenn hafa óskað eftir þeim gögnum sem Morgunblaðið greinir frá í dag.
Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira