"Börn ekki eiga heima í fangelsum“ 14. september 2011 19:18 Kristján Jóhann Matthíasson á son í fangelsi í Bretlandi.
Faðir drengs sem nú afplánar lífstíðarfangelsi á Englandi segir það enga lausn að vista unga glæpamenn með fullorðnum afbrotamönnum. Hann telur ólíklegt að ungir einstaklingar verði að ærlegum þjóðfélagsþegnum eftir slíka dvöl. Það var árið 2007 sem Brandon Richmond komst í heimsfréttirnar ásamt fjórum breskum piltum fyrir að hafa veitt ungum manni banvæna hnífsstungu. Brandon er hálfíslenskur, sonur Kristjáns Jóhanns Matthíassonar, sem hann heimsótti haustið áður. „Og hann var þá ekki í góðum málum, hafði verið í deilum í skólanum og var kominn í fíkniefni. Þegar ég kvaddi hann, þá kvaddi ég hann með orðunum að hann skyldi fara að taka sig á, annars biði eftir honum útsýni í gegnum rimlana," segir Kristján. Og sú varð raunin, Brandon var árið 2008 dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir verknaðinn, einungis 12 ára, með möguleika á reynslulausn eftir 16 ár. Í fyrstu var hann vistaður í unglingafangelsi, en fjórtán ára var hann fluttur yfir í fangelsi rétt hjá Ipswich sem hýsir fullorðna afbrotamenn. "Það er hroðaleg tilhugsun. Maður náttúrulega biður fyrir því og vonar að hann verði ærlegur þjóðfélagsþegn, en ef þú ert búin að vera frá 12-13 ára til 28 ára aldurs í fangelsi út af einhverju sem þú framdir þegar þú varst á þessum aldri... líkurnar eru ekki hans megin." Kristján hefur ekki heyrt í syni sínum frá því að hann var fluttur til Ipswich, en samband hans við fjölskyldu drengsins hefur ekki verið upp á marga fiska. Hann vonar þó hið besta og ætlar að halda ótrauður áfram að reyna að ná sambandi. Kristján segir börn ekki eiga heima í fangelsum með fullorðnum, en nokkur slík tilfelli hafa komið upp hér á landi síðustu ár. „Mér finnst þetta engin lausn, engin lausn."
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Sjá meira