Kaþólski biskupinn tekur ásakanirnar alvarlega - dómstólar ákvarða sekt 22. júní 2011 12:09 Pétur Bürcher, biskup Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, hefur sent Ögmundi Jónassyni, innanríkisráðherra, opið bréf Mynd GVA „
Biskup tekur mjög alvarlega þær ásakanir sem fram eru bornar um kynferðislegt áreiti innan vébanda Kaþólsku kirkjunnar. Vill kirkjan af öllum mætti styðja við þá einstaklinga sem hlut eiga að máli og stendur öll sú þjónusta sem kirkjan hefur fram að bjóða þeim opin." Þetta kemur fram í opnu bréfi sem séra Pétur Bürcher, biskup Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, hefur sent Ögmundi Jónassyni, innanríkisráðherra. Tilefni skrifanna er umfjöllun Fréttatímans um kynferðislega misnotkun innan kaþólsku kirkjunnar, sem og umfjöllun um fund sem ráðuneytið boðaði biskup Kaþólsku kirkjunnar til fyrir skömmu, ásamt ráðuneytissstjóra, aðstoðarmanni ráðherra, fulltrúi Barnaverndarstofu og fulltrúi lögreglunnar. Pétur segist í bréfinu árétta það sem fram kom á fundinum, að Kaþóska kirkjan vinnur, í samvinnu við biskupdæmin á Norðurlöndum að setningu samræmdra vinnureglna og viðbragðsáætlunar komi upp tilvik af þessu tagi. „Af hálfu Kaþólsku kirkjunnar er þess óskað, að fagráð um kynferðisbrot leiti eftir upplýsingum og beini fyrirspurnum bréflega til biskups Kaþólsku kirkjunnar í stað þess að ásaka biskup um aðgerðarleysi og þögn í fjölmiðlum. Reyndar var um það rætt á fyrrnefndum fundi með ráðherra að lögmanni Kaþólsku kirkjunnar yrði sendar upplýsingar sem ekki hafa enn borist," segir Pétur í bréfinu. Þá veltir hann upp hver réttir látinna einstaklinga sé þegar þeir eru ásakaðir um alvarlega glæpi. „Það er hvorki hlutverk stjórnvalda né kirkjunnar heldur dómstóla að undangenginni lögreglurannsókn að skera úr um sekt eða sakleysi þeirra sem sökum eru bornir. Umfjöllun í fjölmiðlum um kynferðisbrot innan Kaþólsku kirkjunnar gefur tilefni til að árétta þetta og jafnframt að spyrja hver sé réttur þeirra látnu einstaklinga sem ásakanirnar beinast að," ritar Pétur.BRÉF SÉRA PÉTURS TIL INNANRÍKISRÁÐHERRA:Reykjavík, 21. júní 2011.Innanríkisráðuneytiðb.t. ráðherraÖgmundar Jónassonar.Um helgina birtist í Fréttatímanum grein undir fyrirsögninni "Kynferðisleg misnotkun innan kaþólsku kirkjunnar á Íslandi." Af því tilefni sendi Kaþólska kirkjan frá sér hjálagða fréttatilkynningu.Einnig hefur blaðið birt viðtöl við Guðrúnu Ögmundsdóttur sem stýrir nýju fagráði á vegum ráðuneytisins um kynferðisbrot. Gerir hún m.a. að umtalsefni fund sem ráðuneytið boðaði biskup Kaþólsku kirkjunnar til fyrir skömmu. Með biskupi kom til fundarins lögmaður kirkjunnar en auk ráðherra og aðstoðarmanns hans og ráðuneytisstjóra sátu fundinn Bragi Guðbrandsson frá Barnaverndarstofu og Björgvin Björgvinsson frá Lögreglunni í Reykjavík.Á fundinum gerði ráðherra grein fyrir því að einstaklingur hefði komið að máli við sig og rætt um kynferðislegt áreitni sem hann hafi orðið fyrir af hálfu prests innan Kaþólsku kirkjunnar. Ennfremur hafi bróðir hans lýst misnotkun sem hann hafi orðið fyrir sem barn af hendi þáverandi skólastjóra Landakotsskóla sem var prestur innan Kaþólsku kirkjunnar og samstarfskonu hans.Á fundinum var einnig fjallað almennt um mál af þessu tagi og viðbrögð við þeim þ.m.t. mikilvægi þess að hafa verklagsreglur og viðbragðsáætlun tilbúna kæmu svona mál upp.Af hálfu Kaþólsku kirkjunnar var fundarmönnum gerð grein fyrir því að síðastliðinn vetur hafi biskupi borist erindi frá einstaklingi er varðaði kynferðislegt áreitni prests innan kirkjunnar og skýrt frá viðbrögðum biskups við því.Að gefnu tilefni skal áréttað að biskup Kaþólsku kirkjunnar brást án tafar við bréfinu. Viðkomandi var boðaður til fundar með biskupi og í kjölfar var málið rannsakað innan kirkjunnar að því marki sem hægt var, en viðkomandi prestur var látinn og mörg ár liðin frá atvikinu. Leitað var álits og ráðgjafar frá lögmanni Kaþólsku kirkjunnar við umfjöllun málsins.Fyrir liggja bréfaskipti aðila vegna málsins og af hálfu kirkjunnar er ekkert því til fyrirstöðu að ráðherra og/eða önnur yfirvöld fá afrit þeirra. Eðli málsins samkvæmt er þó rétt að samþykki hlutaðeigandi einstaklings þar að lútandi liggi fyrir.Af hálfu kirkjunnar var ekki tekin afstaða til ásakana um kynferðislega áreitni starfsmanns kirkjunnar en viðkomandi einstaklingur var hvattur til að leita til lögreglu eða annarra yfirvalda vegna málsins. Kaþólska kirkjan myndi í hvívetna aðstoða yfirvöld við að upplýsa málið.Biskup tekur mjög alvarlega þær ásakanir sem fram eru bornar um kynferðislegt áreiti innan vébanda Kaþólsku kirkjunnar. Vill kirkjan af öllum mætti styðja við þá einstaklinga sem hlut eiga að máli og stendur öll sú þjónusta sem kirkjan hefur fram að bjóða þeim opin. Þá skal áréttað það sem fram kom á fundinum með ráðherra, að Kaþólska kirkjan vinnur í samvinnu við biskupdæmin á Norðurlöndum að setningu samræmdra vinnureglna og viðbragðsáætlunar komi upp tilvik af þessu tagi.Ráðherra eða fagráði fyrir hans hönd er velkomið að fylgjast með þeirri vinnu sem hér um ræðir. Þá væri Kaþólsku kirkjunni akkur í því að fá gögn og upplýsingar um skipan þessara mála hjá öðrum aðilum svo sem þjóðkirkjunni. Af hálfu kirkjunnar er sérstaklega óskað eftir fundi með fagráði í þessu skyni.Af hálfu Kaþólsku kirkjunnar er þess óskað, að fagráð um kynferðisbrot leiti eftir upplýsingum og beini fyrirspurnum bréflega til biskups Kaþólsku kirkjunnar í stað þess að ásaka biskup um aðgerðarleysi og þögn í fjölmiðlum. Reyndar var um það rætt á fyrrnefndum fundi með ráðherra að lögmanni Kaþólsku kirkjunnar yrði sendar upplýsingar sem ekki hafa enn borist.Kaþólska kirkjan er trúfélag og heldur uppi öflugu mannúðar- og menningarstarfi innan sinna vébanda. Það er ekki hlutverk stjórnvalda að grafa undan því trausti sem kirkjan nýtur meðal almennings heldur styðja kirkjuna og styrkja í starfsemi sinni. Kaþólska kirkjan er sammála ráðherra um nauðsyn þess að setja vinnu- og verklagsreglur vakni grunur um kynferðisbrot innan kirkjunnar. Slík vinna á sér stað innan kirkjunnar og er einboðið að vinna að því máli í samvinnu við yfirvöld.Það er hvorki hlutverk stjórnvalda né kirkjunnar heldur dómstóla að undangenginni lögreglurannsókn að skera úr um sekt eða sakleysi þeirra sem sökum eru bornir. Umfjöllun í fjölmiðlum um kynferðisbrot innan Kaþólsku kirkjunnar gefur tilefni til að árétta þetta og jafnframt að spyrja hver sé réttur þeirra látnu einstaklinga sem ásakanirnar beinast að.Virðingarfyllst,Fyrir hönd Péturs Bürcher, biskupsFriðjón Örn Friðjónsson hrlLögmaður Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi
Mest lesið „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Innlent Segir nýtt að konan sé tekin á beinið Innlent „Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, fiskurinn á sig sjálfur í sjónum“ Innlent Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Lalli Johns er látinn Innlent Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Erlent Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Erlent Fimmtán ára piltur ók undan lögreglu um allt höfuðborgarsvæðið Innlent Leggja til róttækar breytingar á byggingaeftirliti Innlent „Ofgnjótt af vannýttum stæðum“ Innlent Fleiri fréttir Hrærður yfir eftirvæntingu stjórnarandstöðunnar en hafði annað að gera Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá Fimmtán ára piltur ók undan lögreglu um allt höfuðborgarsvæðið Reyna enn einu sinni að ræða framtíð MÍR á aðalfundi Leggja til róttækar breytingar á byggingaeftirliti Á von á veiðigjaldamálinu í sína nefnd og þingstörfum fram í júlí Segir nýtt að konan sé tekin á beinið „Ofgnjótt af vannýttum stæðum“ Veiðigjöldin afgreidd í nefnd og njósnarar buðu Sjóvá þjónustu sína Bein útsending: Aðgerðir til að bregðast við rakaskemmdum og öðrum byggingagöllum Mikil hætta meðan maður reyndi að flýja lögreglu í miðbænum „Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, fiskurinn á sig sjálfur í sjónum“ Langflestir telja stríð og átök það sem helst þjakar heiminn „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Lalli Johns er látinn Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Aðgerðir gegn Temu og Shein, hraðbanki í hættu og þreyttir hlaupagarpar í beinni „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Hækka þurfi veiðigjald í skrefum 230 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Vopnahlé og í beinni frá Basel og Öskjuhlíð Björgunarsveitir vilja undanþágu frá virðisaukaskatti Gasa, veiðigjöld, gagnaleki og kolefni í Sprengisandi Starfsmaður verslunar sleginn Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar Sjá meira