Bjargað eftir níu daga í húsarústum 21. mars 2011 20:22 Jin Abe á spítalanum Mynd/AFP
Sextán ára gamall piltur sem bjargað var úr húsarústum í norðurhluta Japans ásamt ömmu sinni eftir níu daga segir þau hafa nærst á vatni og flögum. Staðfest er að tala látinna sé nú nærri níu þúsund og um þrettán þúsund er enn saknað. Pilturinn sem heitir Jin Abe talaði í fyrsta skipti við blaðamenn á sjúkrahúsi í morgun en hann hafði setið fastur ásamt ömmu sinni í húsi þeirra frá því að skjálftinn reið yfir fyrir níu dögum. „Það er mikill léttir að okkur skuli hafa verið bjargað," sagði hann við blaðamenn. Abe fannst á þaki hússins í bænum Ishinomaki þar sem hann hafði vafið sig inn í handklæði og kallaði á hjálp. Amma hans Sumi Abe, sat einnig föst í húsinu, en þau vissu í raun ekki hvar þau voru. „Ég vissi bara að við værum einhvers staðar í húsinu," sagði hann. Hin áttræða amma var veikburða og átti erfitt með að ganga, en var flott á brott með þyrlu. Það sem varð þeim til happs var að þau komust í ísskáp heimilisins og nærðust á vatni og flögum að sögn drengsins. Björgunarfólk í Japan lítur á björgun Abe og ömmu hans sem kraftaverk en litlar líkur eru taldar á því að fleiri geti verið á lífi. Frá Japan berast annars þær fréttir að tala látinna sé í kringum 9 þúsund og er um 13 þúsund enn saknað.
Jarðskjálfti í Japan Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Fleiri fréttir Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Sjá meira