Viðskipti innlent

Forstjóri Bankasýslunnar hættir á morgun

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Elín Jónsdóttir fráfarandi formaður Bankasýslu ríkisins.
Elín Jónsdóttir fráfarandi formaður Bankasýslu ríkisins.
Elín Jónsdóttir, forstjóri Bankasýslu ríkisins, lætur af störfum á morgun. Hún sagði starfi sínu lausu í byrjun ágúst. Starf forstjóra var auglýst laust til umsóknar 11. nóvember síðastliðinn og rennur umsóknarfrestur út 27. nóvember.

Eins og kunnugt er hafði Páll Magnússon, bæjarritari í Kópavogi, verið ráðinn í starfið en hann sagði starfinu lausu eftir mikla gagnrýni á ræðuna. Bankasýslan verður þó ekki alveg forstjóralaus eftir brotthvarf Elínar, því Karl Finnbogason, sérfræðingur hjá stofnuninni, hefur verið skipaður staðgengill forstjóra og mun gegna starfinu þar til nýr forstjóri verður ráðinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×