Salmonella Enteritidis greinist í fyrsta skiptið í búfénaði hérlendis 23. september 2011 14:09 Svín. Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Salmonella Enteritidis greindist í stoksýni sem tekið var af svínaskrokki. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi tegund salmonellu greinist í búfé hérlendis samkvæmt tilkynningu á heimasíðu Matvælastofnunnar. Salmonella Enteritidis getur valdið alvarlegum matarsýkingum í fólki. Litlar líkur eru þó á, að S. Enteritidis berist í fólk með svínakjöti enda fylgist Matvælastofnun með salmonellumengun í svínarækt og við svínaslátrun með þrenns konar sýnatökum. Það er með kjötsafasýnum þar sem fylgst er með mótefnum í kjötsafa gegn salmonellu allt árið. Stroksýnum af skrokkum þar sem leitað er að salmonellu á yfirborði svínaskrokka við hverja slátrun og saursýnum þar sem leitað er að salmonellu einu sinni á ári á svínabúum í fyrsta flokki. Tekin eru stroksýni af a.m.k. 10 sláturskrokkum frá hverju búi í hverri slátrun en fjöldi sýna fer eftir fjölda sláturgrísa. Ef jákvætt eða jákvæð sýni greinist í hraðprófi, eru tekin sýni af öllum skrokkum frá viðkomandi búi í næstu slátrun og skrokkarnir geymdir þar til niðurstöður liggja fyrir. Ef stroksýni greinist jákvætt, er viðkomandi skrokkur stimplaður með heilbrigðisstimpli 2 og má aðeins fara á markað eftir hitameðhöndlun. Þannig er komið í veg fyrir að smitefnið geti borist í fólk því salmonella þolir ekki hitameðhöndlun. Þetta eftirlitskerfi er sett upp með það að markmiði að vernda neytendur gegn hugsanlegum matarsýkingum sem borist gætu með svínakjöti. Hið mengaða kjöt sem hér um ræðir fór í hitameðhöndlun áður en það fór á markað og stafar neytendum ekki hætta af neyslu þess.
Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Innlent Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Innlent Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents Innlent Fyrsti stríðsþristurinn lentur Innlent Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Innlent Fleiri fréttir Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Þolinmæði saminganefnda á þrotum Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Fyrsti stríðsþristurinn lentur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Séra Eva Björk ráðin biskupsritari Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Sungið og sungið á Sauðárkróki „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Ósk um handtökuheimild og deilur um Erfðagreiningu Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Sjá meira
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent