Júlíus: Ekki draumariðillinn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. júní 2010 18:29 Júlíus Jónasson landsliðsþjálfari. Mynd/Anton
Júlíus Jónasson, landsliðsþjálfari í handbolta, hafði blendnar tilfinningar gagnvart riðlinum sem Ísland keppir í á EM í handbolta í desember næstkomandi. Dregið var í riðlana fjóra en alls keppa sextán þjóðir í lokakeppninni. Sama fyrirkomulag er á keppninni og á EM karla, þar sem þrjú lið komast úr hverjum riðli í milliriðla og tvö efstu liðin úr hvorum riðli komast í undanúrslit. „Já, ég er ekki viss. Við fyrstu sýn er þetta alla vega ekki það sem ég óskaði mér," sagði Júlíus. „Minn draumadráttur var að við myndum lenda í riðli með Þýskalandi, Danmörku og Svíþjóð." Ísland er í riðli með Svartfjallalandi, Króatíu og heimsmeistaraliði Rússlands. „Það má í raun segja að við erum að fá austurblokkina eins og hún leggur sig," sagði hann í léttum dúr. Júlíus sagði helsta vandamálið vera að hann þekkti lítið til liða Svartfellinga og Króata. „Ég hef séð til flestra liða sem eru að spila á EM nema þessara tveggja. Við þurfum því að nýta tímann vel fram að móti og afla okkur upplýsinga um liðin." „Þetta er vissulega enginn draumadráttur en þetta eru úrslit á EM og við erum í fjórða styrkleikaflokki. Svo getur vel verið að þetta verði hið besta mál þegar uppi er staðið." „Það er alveg ljóst að markmið okkar verður að komast áfram í milliriðil. Við erum búin að afreka það að komast á þetta mót og þetta verður því engin túristaferð. Við munum setja okkur alvöru markmið." Ísland og Svartfjallaland eru einu liðin á EM sem ekki hafa áður komist í lokakeppnina. Króatar hafa aldrei komist á verðlaunapall á stórmóti og urðu í sjötta sæti á síðasta EM. Rússland hefur fjórum sinnum orðið heimsmeistari og fengið eitt silfur og tvenn bronsverðlaun á Evrópumeistaramótum. Þá vann liðið til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008.
Handbolti Mest lesið Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Fleiri fréttir Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Sjá meira