Spáir 0,5 prósentustiga stýrivaxtalækkun 4. maí 2010 11:57
Greining MP Banka spáir því að stýrivextir verði lækkaðir um 0,5% prósentustig á morgun. Þetta kemur fram í Markaðsvísi greiningarinnar. Í Markaðsvísinum segir að líkt og áður kom fram í síðustu fundargerð peningastefnunefndar að héldist gengi krónunnar stöðugt eða styrktist og verðbólga hjaðnaði líkt og spáð var væri áfram til staðar forsendur til frekari slökunar peningastefnunnar. Hvort tveggja hefur gerst: Krónan hefur haldist stöðug frá síðustu ákvörðun og verðbólga hefur hjaðnað í takt við spár. „Peningastefnunefndin benti einnig á að svigrúm til vaxtalækkunar yrði takmarkað á meðan veruleg óvissa ríkti um aðgengi Íslands að alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Síðan hefur verið gengið frá annarri endurskoðun efnahagsáætunarinnar sem fól í sér aðgengi að lánsfé frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Norðurlöndunum. Framhald efnahagsáætlunarinnar er eftir sem áður háð lausn Icesave deilunnar og verður að telja líklegt að þriðja endurskoðun, sem að öðru óbreyttu er á dagskrá í júlí, kunni að tefjast af þeim sökum," segir í Markaðsvísinum. „Moody's breytti horfum um lánshæfismat ríkisins úr neikvæðum í stöðugar. Í árlegri skýrslu matsfyrirtækisins um Ísland kemur fram að dregið hafi úr óvissu um endurreisn efnahagslífsins eftir að annarri endurskoðun efnahagsstefnunnar lauk í apríl. Vaxtarhorfur eru þó taldar veikari en áður en að sama skapi eru taldar minni líkur en áður á stórfelldum áföllum. Staða innstæðubréfa er nú um 77 milljarða kr. sem er ríflega tvöföldun frá þeirri stöðu sem var við síðustu vaxtaákvörðun. Ávöxtunarkrafa ríkisbréfa hefur haldið áfram að lækka og dregið hefur úr verðbólguálagi á skuldabréfamarkaði. Vaxtastigið hefur því skilað auknu aðhaldi og væntingar á markaði eru um að töluvert verði slakað á því. Horfur í alþjóðlegum efnahagsmálum höfðu batnað nokkuð við síðustu vaxtaákvörðun en síðan þá hafa þær versnað á ný. Þar er um að ræða óvissu um hvort efnahagsaðstoð við Grikkland muni skila tilætluðum árangri og hvort önnur evrulönd þurfi einnig á slíkri aðstoð að halda. Olíuverðshækkun vegna afleiðinga slyssins á Mexíkóflóa hefur einnig áhrif. Þótt ekki sé um eftirspurnardrifna verðbólgu að ræða um þessar mundir eru líkur á áframhaldandi verðhækkunum vegna kostnaðarþrýstings. Hækkun á launatengdum gjöldum og öðrum sköttum skiptir þar máli. Hættan á verulegum launahækkunum á næstu mánuðum sem ýtt verður út í verðlag og festir verðbógluvæntingar í sessi hlýtur einnig að valda Seðlabankanum áhyggjum. Líklegast er að áfram verði haldið á sömu braut og því má reikna með 0,5 prósenta lækkun stýrivaxta á morgun, þótt viðbúið sé að ólíkar skoðanir séu á lofti innan peningatefnunefndarinnar líkt og síðast."
Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Sjá meira