Búið að kjósa um kvótann 24. mars 2010 06:00 Fyrir alþingiskosningar lofuðu núverandi stjórnarflokkar að fiskveiðiauðlindin yrði í þjóðareign og að látið yrði af mannréttindabrotum. Þegar Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra og Atli Gíslason, formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar, voru í stjórnarandstöðu fluttu þeir sérstakt þingmál ásamt þingmönnum Frjálslynda flokksins, um að breyta stjórn fiskveiða í samræmi við úrskurð Mannréttindanefndar SÞ. Ríkisstjórn Vg og Samfylkingar festi síðan kosningaloforðin í stefnuyfirlýsingu sína og skýrt var tekið fram í henni að tryggja ætti jafnræði við úthlutun afnotaréttar og aðgengis að sameiginlegri auðlind. Það er sem sagt búið að kjósa um kvótann. Ríkisstjórnin hefur svikið að uppfylla fyrirheit sín. Varaþingmaður Samfylkingarinnar hefur lýst því að þingið geti ekki komið í veg fyrir rán á fiskveiðiauðlindinni. Það hefur orðið hvati þess að hópur ábyrgs fólks hefur stofnað samtökin Þjóðareign, sem hafa það að markmiði að tryggja að fiskveiðiauðlindin verði í almannaeign. Leiðin til þess er að setja illræmt kvótakerfi í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þessi aðferð fékk óvæntan stuðning frá forsætisráðherra þjóðarinnar, Jóhönnu Sigurðardóttur, en hún ásamt Steingrími J. Sigfússyni eru einu þingmennirnir sem enn sitja á Alþingi sem samþykktu framsalið og kvótabraskið á sínum tíma. Stuðningur Jóhönnu við þjóðaratkvæðagreiðslu um kvótann kemur á óvart í ljósi þess að hún taldi það tímasóun að taka þátt í fyrstu þjóðaratkvæðagreiðslunni á lýðveldistímanum. Á kjörtímabilinu hefur forsætisráðherrann komið í veg fyrir að þjóðin fái að segja sína skoðun um hvort sækja eigi um aðild að ESB og sömuleiðis hafnað því að þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild að ESB verði bindandi. Efast má því um að það sé raunverulegur vilji Jóhönnu Sigurðardóttur að þjóðin eigi að greiða atkvæði um kvótakerfið. Ríkisstjórnin er einfaldlega að drepa á dreif umræðu um svikin loforð. Ef forsætisráðherra er alvara að vilja breyta kvótakerfinu, þá væri hann ekki með neinar refjar heldur hrinti boðuðum breytingum í framkvæmd. Höfundur er formaður Frjálslynda flokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Fyrir alþingiskosningar lofuðu núverandi stjórnarflokkar að fiskveiðiauðlindin yrði í þjóðareign og að látið yrði af mannréttindabrotum. Þegar Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra og Atli Gíslason, formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar, voru í stjórnarandstöðu fluttu þeir sérstakt þingmál ásamt þingmönnum Frjálslynda flokksins, um að breyta stjórn fiskveiða í samræmi við úrskurð Mannréttindanefndar SÞ. Ríkisstjórn Vg og Samfylkingar festi síðan kosningaloforðin í stefnuyfirlýsingu sína og skýrt var tekið fram í henni að tryggja ætti jafnræði við úthlutun afnotaréttar og aðgengis að sameiginlegri auðlind. Það er sem sagt búið að kjósa um kvótann. Ríkisstjórnin hefur svikið að uppfylla fyrirheit sín. Varaþingmaður Samfylkingarinnar hefur lýst því að þingið geti ekki komið í veg fyrir rán á fiskveiðiauðlindinni. Það hefur orðið hvati þess að hópur ábyrgs fólks hefur stofnað samtökin Þjóðareign, sem hafa það að markmiði að tryggja að fiskveiðiauðlindin verði í almannaeign. Leiðin til þess er að setja illræmt kvótakerfi í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þessi aðferð fékk óvæntan stuðning frá forsætisráðherra þjóðarinnar, Jóhönnu Sigurðardóttur, en hún ásamt Steingrími J. Sigfússyni eru einu þingmennirnir sem enn sitja á Alþingi sem samþykktu framsalið og kvótabraskið á sínum tíma. Stuðningur Jóhönnu við þjóðaratkvæðagreiðslu um kvótann kemur á óvart í ljósi þess að hún taldi það tímasóun að taka þátt í fyrstu þjóðaratkvæðagreiðslunni á lýðveldistímanum. Á kjörtímabilinu hefur forsætisráðherrann komið í veg fyrir að þjóðin fái að segja sína skoðun um hvort sækja eigi um aðild að ESB og sömuleiðis hafnað því að þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild að ESB verði bindandi. Efast má því um að það sé raunverulegur vilji Jóhönnu Sigurðardóttur að þjóðin eigi að greiða atkvæði um kvótakerfið. Ríkisstjórnin er einfaldlega að drepa á dreif umræðu um svikin loforð. Ef forsætisráðherra er alvara að vilja breyta kvótakerfinu, þá væri hann ekki með neinar refjar heldur hrinti boðuðum breytingum í framkvæmd. Höfundur er formaður Frjálslynda flokksins.
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar