Innlent

Við kolmunnaveiði vestur af Írlandi

Nokkur stór fjölveiðiskip sem hafa verið á loðnuveiðum til skamms tíma eru nú farin á kolmunnaveiðar vestur af Írlandi, enda er loðnukvótinn búinn. Aflabrögð virðast vera góð því eitt skipanna er þegar á heimleið með fullfermi.

Ekki liggur fyrir hversu vel kolmunninn, sem nú veiðist, hentar til manneldis, en áhersla er lögð á að vinna sem mest af aflanum þannig. Skip frá fleiri þjóðum eru að veiðum á þessum slóðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×