Lars Christiansen: Áttum ekki möguleika Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Linz skrifar 23. janúar 2010 22:48 Lars Christiansen.
Lars Christiansen sagði það einfalt mál af hverju Danir hafi ekki átt möguleika gegn Íslendingum í kvöld í samtali við Vísi eftir leikinn. Ísland vann fimm marka sigur á Dönum, 27-22, á EM í handbolta í kvöld og tryggðu sér þar með sigur í riðlinum og fara með þrjú stig með sér í milliriðlakeppnina í Vínarborg. „Við vorum ekki 100 prósent undirbúnir fyrir þennan leik. Ísland spilaði vel strax frá fyrstu mínútu og settu mikla pressu á okkur. Þeir létu okkur hafa mikið fyrir hlutunum og voru afar ákveðnir í sínum varnarleik. Þess vegna áttum við ekki möguleika í leiknum.“ „Við reyndum að stíga upp og gera það sem við gátum en það var bara ekki eins og við værum 100 prósent til staðar í leiknum. Á meðan svo er á maður ekki möguleika.“ Danir og Ísland hafa spilað marga jafna leiki á undnaförnum árum og þeim hefur yfirleitt lyktað með jafntefli. Ísland hafði hins vegar mikla yfirburði í leiknum í kvöld. „Íslenska liðið kom mér ekki á óvart. Það er með gríðarlega sterka liðsheild og er almennt mjög gott handboltalið. Við sjáum líka að þeir hafa tekið atriði úr okkar varnarleik og útfært það fyrir sig. Það hafa þeir gert mjög vel og því var erfitt fyrir okkur að finna leið í gegnum vörnina.“ „Þá komu auðveldu mörkin í kjölfarið hjá Íslandi og þeir gengu bara á lagið.“
Mest lesið Ræddu brotthvarf Davíðs: „Þetta er eins og köld vatnsgusa“ Íslenski boltinn „Eina leiðin að segja já og amen við dómaranefndina“ Körfubolti Jón Þór ráðinn í björgunaraðgerðir hjá Vestra Íslenski boltinn Davíð Smári hissa: „Sökudólgur sjálfur með því að setja viðmiðið mjög hátt“ Íslenski boltinn Fengu nóg af skeytingarleysi og mismunun Íslenski boltinn Slæm byrjun Chelsea skilaði Bayern sigri Fótbolti Amorim að verða uppiskroppa með afsakanir Enski boltinn Sjáðu boltahnupl Valdimars sem nánast tryggði Víkingum titilinn Íslenski boltinn Héldu vöku fyrir leikmönnum Liverpool Fótbolti Meiddist hroðalega en fór hlæjandi af velli Sport Fleiri fréttir Hroðaleg hnémeiðsli Janusar Daða Tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin Rut barnshafandi Haukur hafði betur í Íslendingaslagnum Eins marks sigur Valskvenna í Evrópudeildinni ÍBV með þægilegan sex marka sigur á Þór Sex marka tap í fyrsta Evrópuleik Selfyssinga Dramatískt jafntefli á Ásvöllum KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH „Þetta var bara draumi líkast“ „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ „Munurinn á liðunum var einfaldlega markvarslan“ Uppgjörið: Fram - Haukar 27-32 | Haukar sigldu sigrinum í höfn í Úlfarsárdal Flautumark í Breiðholti Ómar Ingi markahæstur í sigri Magdeburgar Kaflaskipt í sigri Valsmanna Glimrandi byrjun Gummersbach heldur áfram Janus markahæstur í frábærum sigri á PSG Ásdís átti stórleik í stórsigri Vals KA/Þór með fullt hús stiga Bjarki skoraði fjögur mörk í mjög kaflaskiptum leik Mættur heim í Hauka eftir erfið ár í Frakklandi Segja leikmenn hafa kvartað undan Guðmundi Spenntur að spila aftur í Vestmannaeyjum Kveðst skilja vel hvers vegna Guðmundur var rekinn Kári Kristján semur við Þór Akureyri Markahæstur í vetur og nálgast ellefu hundruð mörkin í þýsku deildinni Guðmundur rekinn frá Fredericia Stórleikur Íslendinganna dugði ekki til sigurs Sjá meira