Tyrkir mæta Bandaríkjamönnum í úrslitaleiknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. september 2010 20:36 Kerem Tunceri númer 10) skoraði stórar körfur fyrir Tyrki í kvöld. Mynd/AP
Tyrkir komust í úrslitaleikinn á HM í fyrsta sinn í sögunni eftir æsispennandi og dramatískan undanúrslitaleik við Serba í kvöld á HM í körfubolta í Tyrklandi. Tyrkir skoruðu sigurkörfuna hálfri sekúndu fyrir leiklok og unnu 83-82. Serbar voru með forustuna nær allan leikinn en Tyrkir gáfust ekki upp og tryggðu sér ótrúlegan karaktersigur í blálokin. Serbar voru með sjö stiga forskot í hálfleik, 42-35 en Tyrkir byrjuðu seinni hálfleikinn að krafti og náðu strax að jafna leikinn í 46-46. Því svöruðu Serbar hinvegar með átta stigum í röð og tóku frumkvæðið aftur í leiknum. Tyrkir náðu aftur að minnka muninn í þrjú stig, 63-60, fyrir lokaleikhlutann en Serbar virtust ætla að svara hverju áhlaupi heimamanna á fætur öðru. Heimamenn gáfust hinsvegar ekki upp dyggilega studdir af troðfullri höll í Istanbul. Það var loksins Kerem Tunceri sem kom Tyrkjum yfir í 76-75 þegar 3 mínútur og 25 sekúndur voru eftir. Novica Velickovic kom Serbum í 82-81 þegar 4,3 sekúndur voru eftir af leiknum en Tyrkir áttu síðustu sóknina í leiknum. Lokasókn Tyrkja virtist vera að leysast upp þegar umræddur Kerem Tunceri fékk boltann óvænt og fór upp að körfu og skoraði sigurkörfuna þegar hálf sekúnda var eftir af leiknum. Hidayet Türkoglu skoraði 16 stig fyrir Tyrki, Ömer Onan var með 14 stig og þeir Kerem Tunceri og Ender Arslan voru báðir með tólf stig. Milos Teodosic átti flottan leik fyrir Serba með 13 stig og 11 stoðsendingar en Marko Keselj var stigahæstur með 18 stig. Bandaríkin og Tyrkland hafa unnið alla sína leiki á mótinu og mætast í úrslitaleiknum á morgun á undan spila Serbar og Litháar um 3. sætið.
Körfubolti Mest lesið Eiginkona og tvö börn fótboltamanns létust Fótbolti Hermann látinn taka pokann sinn Fótbolti Glæsimark sem felldi KR, markaveisla á Akureyri og fyrsti sigur Jóns Þórs Íslenski boltinn Tveimur refsað og Bergrós líklegast á leið á heimsleikana Sport Óvæntur og „ótrúlega mikill heiður“ Fótbolti Styðja þétt við bak Gakpo eftir áfallið mikla Fótbolti Elísa fór kílómetrana 80 á undir níu klukkustundum Sport Arnór seldur til Grikklands Fótbolti Jürgen Klopp segir að þetta sé besta bandaríska landsliðið í sögunni Fótbolti „Þetta er ekki kallað fótbolti heldur peningabolti“ Fótbolti Fleiri fréttir Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Sjá meira