Viðskipti innlent

Krónan styrkist áfram og raungengi hennar hækkar

Krónan heldur áfram að sækja í sig veðrið og stendur gengisvísitala krónunnar, sem vegur saman verð gjaldmiðla helstu viðskiptaþjóða Íslands gagnvart krónunni, nú þegar þetta er ritað (kl: 11:00) í 223,18 stigum og hefur ekki verið jafn lág síðan í byrjun júní á síðasta ári. Þá hækkaði raungengi krónunnar fimmta mánuðinn í röð í apríl.

Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að jafnframt hefur krónan haldið áfram að styrkjast gagnvart evru nú í morgun og kostar evran nú 164,25 kr. á millibankamarkaði með gjaldeyri. Hefur krónan ekki verið jafn sterk gagnvart evru síðan í byrjun apríl í fyrra.

„Við teljum líklegast að styrking krónunnar eigi rætur að rekja til aukins gjaldeyrisinnflæðis vegna afgangs af vöru og þjónustuviðskiptum og ólíklegt að inngrip Seðlabanka skýri styrkinguna nú," segir í Morgunkorninu.

Raungengi íslensku krónunnar hækkaði fimmta mánuðinn í röð í apríl síðastliðnum á mælikvarða hlutfallslegs verðlags. Hækkunin að þessu sinni nam 0,6% frá fyrri mánuði og hefur raungengið ekki verið hærra síðan í mars á síðasta ári.

Hækkunin er til komin vegna hækkunar á nafngengi krónunnar um 0,6% á milli mars og apríl, en verðlagsþróun hér á landi og í helstu viðskiptalöndum okkar var með svipuðum hætti á tímabilinu. Þetta kemur fram í tölum sem Seðlabanki Íslands (SÍ) birti á þriðjudag.

Þrátt fyrir þessa hækkun er raungengi krónunnar enn afar lágt í sögulegu samhengi en telja má mjög líklegt að það hafi nú þegar náð lágmarki sínu sem var í ágúst á síðasta ári. Frá því í ágúst hefur raungengi hækkað um tæp 7% en er þó enn rúmlega fjórðungi frá meðaltali sínu síðastliðin 10-20 árin.

Í nýrri spá Seðlabanka Íslands sem birt var í Peningamálum í gær er gert ráð fyrir að raungengið verði að meðaltali einungis tæpum 4% hærra í ár en í fyrra. Lágt raungengi hefur meðal annars bætt samkeppnisstöðu útflutningsgreina og samkeppnisatvinnugreina en á móti hefur það valdið vanda hjá þeim fyrirtækjum sem eru mjög skuldsett í erlendri mynt.

Telur bankinn líklegt að raungengi komi til með að haldast nokkuð lágt á næstu árum vegna mikillar skuldsetningar þjóðarbúsins í erlendri mynt og hárrar áhættuþóknunar á íslenskar fjáreignir.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×