Annar maður handtekinn 6. maí 2010 18:30 Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari. Nú síðdegis handtók hann einn mann til viðbótar í tengslum við sömu rannsókn og Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings var handtekinn í dag. Mynd/Daníel Rúnarsson
Nú síðdegis handtók sérstakur saksóknari einn mann til viðbótar í tengslum við sömu rannsókn og Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings var handtekinn í dag. Hreiðar er grunaður um fjölmörg brot í starfi. Ekki fæst uppgefið um hvern er að ræða. Samkvæmt upplýsingum fréttastofunnar eru fangelsin á Litla Hrauni og við Skólavörðustíg yfirfull og því er líklegt að Hreiðari Má og manninum sem handtekinn var síðdegis verði áfram haldið föngnum á lögreglustöðinni á Hverfisgötu. Farið var fram á tveggja vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrr í dag. Dómari tók sér sólarhrings umhugsunarfrest og verður Hreiðar Már því í haldi lögreglu að minnsta kosti til morguns. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, segir að Hreiðar Már hafi verið handtekinn við lok skýrslutöku. Hreiðar Már var áberandi í íslensku viðskiptalífi. Hann hóf störf hjá Kaupþingi árið 1994. Níu árum síðar varð hann forstjóri en hann hafði verið aðstoðarforstjóri um nokkurt skeið. Hann gegndi því starfi þar til bankinn fór í þrot í október 2008. Laun Hreiðars voru talin í milljörðum króna en samkvæmt rannsóknarskýrslunni fékk hann rúma þrjá milljarða króna í laun á árunum 2004-2008. Hreiðar var lengi vel skattakóngur í Reykjavík og á landsvísu. Eftir hrunið stofnaði hann ráðgjafafyrirtækið Consolium ásamt Ingólfi Helgassyni sem einnig gegndi stöðu forstjóra bankans. Þeir félagar opnuðu svo útibú í Lúxemborg og er Hreiðar Már skráður með lögheimili þar. Sérstakur saksóknari hefur að undanförnu haft nokkur mál varðandi starfsemi Kaupþings til rannsóknar, t.a.m. meinta allsherjarmarkaðsmisnotkun og meint sýndarviðskipti sjeiksins Al Thani. Í febrúar var svo gerð húsleit í Banque Havilland í Lúxemborg sem áður var dótturfélag Kaupþings.
Tengdar fréttir Hreiðar Már handtekinn vegna gruns um fjölmörg brot Til grundvallar á handtöku sérstaks saksóknara í dag liggur grunur um skjalabrot, auðgunarbrot, brot gegn lögum um verðbréfaviðskipti, þ.m.t. markaðsmisnotkun og loks gegn hlutafélagalögum. 6. maí 2010 15:33 Sérstakur saksóknari handtók Kaupþingsstjórnanda Sérstakur saksóknari handtók í hádeginu í dag karlmann i tengslum við rannsókn á málefnum Kaupþings. Ekki liggur fyrir að svo stöddu um hvaða einstakling ræðir en samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis er um einn af æðstu stjórnendum gamla bankans að ræða. 6. maí 2010 15:00 Hreiðar gæti átt 8 ára fangelsi yfir höfði sér Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, gæti átt yfir höfði sér allt að átta ára fangelsi veðri hann fundinn sekur um þau brot sem hann er grunaður um. Sérstakur saksóknari handtók Hreiðar Má í dag eftir skýrslutökur. 6. maí 2010 16:29 Hreiðar Már Sigurðsson handtekinn Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, var handtekinn af sérstökum saksóknara í hádeginu í dag. Farið var fram á tveggja vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrr í dag. Dómari tók sér sólarhrings umhugsunarfrest og verður Hreiðar Már því í haldi lögreglu að minnsta kosti til morguns. 6. maí 2010 15:15 Mest lesið Hafnaði hermönnum Trump: „Fullveldið er ekki til sölu“ Erlent Ekki nein þörf á notkun kjarnorkuvopna og vonar að svo verði ekki Erlent „Maður skyldi ætla að það þurfi tiltekið siðferði til að starfa í lögreglunni“ Innlent Segist hafa skipað hæfasta fólkið þvert á athugasemdir verkfræðinga Innlent Föður rafmyntajöfurs rænt og skorinn af honum fingur Erlent Býður upp á sögugöngu um svæðið sem hún vill vernda Innlent Vakinn af „ölvunarsvefni“ inni á baði og brást ókvæða við Innlent Eldur í bíl við fjölbýlishús í Urriðaholti Innlent Fjórtán börn handtekin eftir að drengur lést í eldsvoða Erlent Maður sem lét snáka bíta sig 200 sinnum lykill að tímamótamóteitri Erlent Fleiri fréttir Segist hafa skipað hæfasta fólkið þvert á athugasemdir verkfræðinga Bæjarstjóri Ölfus biðlar til ríkisins vegna Garðyrkjuskólans „Maður skyldi ætla að það þurfi tiltekið siðferði til að starfa í lögreglunni“ Snjólaust á fjöllum og Garðyrkjuskólinn grútnar niður Njósnamálið, hræringar í evrópskum stjórnmálum og fjárhagur borgarinnar Eldur í bíl við fjölbýlishús í Urriðaholti Vakinn af „ölvunarsvefni“ inni á baði og brást ókvæða við Býður upp á sögugöngu um svæðið sem hún vill vernda Sex ára framtíðar sauðfjárbóndi á Rangárvöllum Samfylkingin bætir við sig og sauðburður á fullu Sinueldur við Landvegamót Sigldi ölvaður utan í annan bát og endaði í grjótgarði Kvartöld liðin frá jarðskjálftunum 17. júní á Suðurlandi Samfylkingin með 29 prósenta fylgi „Þetta hefur verið sorgleg þróun“ Mörg hundruð óseldar fasteignir og sótt í sund Rykið dustað af sólbekkjunum Nágrannaerjur, grjótkast og „víðáttuölvuðum“ veitt eftirför Nýtt 44 herbergja hjúkrunarheimili byggt í Hveragerði „Þetta er vítahringur sem endurtekur sig í sífellu!“ Öskrandi reiður í vandræðum með að leigja rafskútu Glussakerfið ónýtt eftir brunann Hefur áhyggjur af arftaka sínum Sér fram á bjarta framtíð fyrir börnin þökk sé styrknum Umtöluð frelsissvipting og stórslösuð sjónvarpsstjarna Búið að innsigla Kastrup: „Góður að taka á móti fólki en ömurlegur í tölvupóstum“ Tifandi tímasprengjan sem grunuð er um frelsissviptingu „Ekki bara rekinn heldur á staðnum og fyrirvaralaust“ „Vona að þú sofir vel“ Eldur í ruslabíl vestur í bæ Sjá meira
Hreiðar Már handtekinn vegna gruns um fjölmörg brot Til grundvallar á handtöku sérstaks saksóknara í dag liggur grunur um skjalabrot, auðgunarbrot, brot gegn lögum um verðbréfaviðskipti, þ.m.t. markaðsmisnotkun og loks gegn hlutafélagalögum. 6. maí 2010 15:33
Sérstakur saksóknari handtók Kaupþingsstjórnanda Sérstakur saksóknari handtók í hádeginu í dag karlmann i tengslum við rannsókn á málefnum Kaupþings. Ekki liggur fyrir að svo stöddu um hvaða einstakling ræðir en samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis er um einn af æðstu stjórnendum gamla bankans að ræða. 6. maí 2010 15:00
Hreiðar gæti átt 8 ára fangelsi yfir höfði sér Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, gæti átt yfir höfði sér allt að átta ára fangelsi veðri hann fundinn sekur um þau brot sem hann er grunaður um. Sérstakur saksóknari handtók Hreiðar Má í dag eftir skýrslutökur. 6. maí 2010 16:29
Hreiðar Már Sigurðsson handtekinn Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, var handtekinn af sérstökum saksóknara í hádeginu í dag. Farið var fram á tveggja vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrr í dag. Dómari tók sér sólarhrings umhugsunarfrest og verður Hreiðar Már því í haldi lögreglu að minnsta kosti til morguns. 6. maí 2010 15:15