Clarkson móðgar múslima Óli Tynes skrifar 27. júlí 2010 16:22 Me sorry? Nah.
Jeremy Clarkson hinn óvægni umsjónarmaður sjónvarpsþáttanna Top Gear er rétt einusinni búinn að móðga fólk. Að þessu sinni eru það múslimar. Það var verið að tala um öryggi á vegum á mismunandi árstíðum og Clarkson sagði að það væri mesti misskilningur að veturnir væru hættulegastir. Þvert á móti væru það sumrin þegar ungar stúlkur fönguðu athygli karlkyns ökumanna með léttum klæðaburði. Hammond, meðstjórnandi, sagði þá að búrkaklæðnaður múslimakvenna gæti kannski bara talist öryggisbúnaður. Clarkson hélt nú ekki. Hann sagði að hann hefði verið í leigubíl á dögunum og séð múslimakonu í búrka hrasa á götunni. Og það hefði greinilega sést að hún hefði verið í rauðum g-streng innanundir flíkinni. Þetta taldi múslimaklerkur til marks um hatur hans á múslimum og fyrirlitningu á múslimakonum. Ef Clarkson bæðist ekki afsökunar gæti hann átt von á því að yngri múslimar réðust á hann. Það er nú hægara sagt en gert að kreista afsökunarbeiðni út úr Jeremy Clarkson. Það vakti talsvert umtal á sínum tíma þegar hann kallaði Gordon Brown eineygan skoskan vitleysing. Þegar hann var krafinn um afsökun sagði Clarkson; „Ég hef ekkert á móti Skotum. Og ef ég hef móðgað fatlað fólk þykir mér það leiðinlegt. En fjandinn hafi það að ég biðjist afsökunar á að kalla hann vitleysing."
Mest lesið Málinu lokið með sátt: „Við erum mjög sáttar með niðurstöðuna“ Innlent Dómur yfir Erni Geirdal mildaður Innlent Sári djúpt snortinn yfir stuðningi Innlent Leigubílstjórar ósáttir við lokun skúrsins: „Aumingjaskapur í þeim“ Innlent Biðjast afsökunar á ummælum björgunarmanns Innlent Ferðamaður ók húsbíl niður göngustíg Innlent Strætó dældi milljónum í öryggisgæslu í Mjódd Innlent Braust inn hjá vinsælum hársnyrti og hafði af honum vegabréfið Innlent Trump segist „mjög vonsvikinn“ út í Elon og ekki viss um að þeir geti átt gott samband Erlent Sérsveitin kölluð út vegna vopnaðs manns Innlent Fleiri fréttir Segir nafn Trumps vera í Epstein skjölunum Trump segist „mjög vonsvikinn“ út í Elon og ekki viss um að þeir geti átt gott samband Ákærð fyrir að myrða táning en líkið enn ófundið Sagður verulega ósáttur við gagnrýni Musks Fíll ruddist inn í matvöruverslun Bannar nú erlenda nemendur í Harvard á grunni þjóðaröryggis Felldu tillögu um að olíusjóðurinn sniðgengi fyrirtæki á hernumdu svæðunum Krefst fimm prósenta til varnarmála: „Allir þurfa að leggja hönd á plóg“ Endurvekur ferðabannið Telja rúmensk glæpagengi smygla matarsendlum inn í Ósló Birtir þrisvar sinnum fleiri færslur en áður Svíar leigja fangelsispláss í Eistlandi Reyndi að bragðbæta baneitruðu máltíðina Musk hraunar yfir „stórt og fallegt“ frumvarp Trumps Rýming í Köln vegna þriggja sprengja frá seinni heimsstyrjöldinni Aftur hafin leit að Madeleine McCann Andstæðingi forsetans brottrekna spáð sigri í forsetakosningum Brúnni milli Rússlands og Krímskaga lokað eftir sprengingar Forsætisráðherra Hollands segir af sér Fjórir ákærðir í tengslum við morðið á C.Gambino Mun þingið fara fram hjá Trump? Víðir segist hafa tekið sjálfstæða ákvörðun í máli Oscars Yfirmaður FEMA sagðist ekki vita af tilvist fellibyljatímabila Leggur fram vantrauststillögu á eigin ríkisstjórn Parks & Rec leikari skotinn af nágranna sínum Frakklandsforseti heimsækir Grænland Wilders slítur ríkisstjórnarsamstarfinu Með sömu óásættanlegu kröfurnar Saka Ísraelsher aftur um að hafa skotið á hóp sem beið eftir hjálpargögnum Skipulagði árásina í Colorado í heilt ár Sjá meira