360 milljónir af ríkisfé til KSÍ 2. janúar 2010 05:00 Knattspyrnusambandið fékk tæpar 200 milljónir í byggingu stúkunnar á Laugardalsvelli.
Knattspyrnusamband Íslands (KSÍ) hefur á síðastliðnum fimm árum fengið 360 milljónir króna úr ríkissjóði. Hafa peningarnir ýmist runnið í gegnum Íþrótta- og Ólympíusambandið (ÍSÍ) eða beint til knattspyrnusambandsins til afmarkaðra verkefna. Þetta kemur fram í svari mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur hjá Samfylkingunni. Á síðustu fimm árum hefur ÍSÍ fengið samtals tæpan milljarð króna af ríkisfé. Af þeirri fjárhæð voru 200 milljónir ætlaðar til framlaga til sérsambanda. KSÍ fékk rúmar 10 milljónir af þeim. Framlög til Afrekssjóðs ÍSÍ námu 145 milljónum. Hlutdeild KSÍ í þeim var 23 milljónir á þessum fimm árum. Bróðurpartur ríkisframlaga til KSÍ hefur verið til afmarkaðra verkefna. Á tímabilinu 2005-2009 fékk sambandið tæpar 200 milljónir vegna stúkunnar á Laugardalsvelli, 100 milljónir vegna sparkvalla sem KSÍ setti upp víða um land í samstarfi við sveitarfélög og fyrirtæki, 27 milljónir hafa runnið til Mannvirkjasjóðs KSÍ og á síðasta ári styrkti ríkið sambandið um tvær milljónir króna vegna kvennalandsliðsins. Í svari ráðherra kemur jafnframt fram að reiknað sé með að KSÍ fái 3,4 milljónir af 145,5 milljóna framlagi ríkisins til ÍSÍ á næsta ári. Í svarinu segir enn fremur að KSÍ hafi nokkra sérstöðu meðal sérsambanda ÍSÍ með tilliti til umfangs starfseminnar. Iðkendur séu 19.200 manns. - bþs
Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira