Þrjár konur til viðbótar ásaka Gunnar 29. nóvember 2010 12:05 Gunnar Þorsteinsson.
Þrjár konur, til viðbótar við þær fimm sem þegar hafa stigið fram, munu á næstunni skila frá sér yfirlýsingum um kynferðislega áreitni Gunnar Þorsteinssonar í Krossinum í sinn garð. Gunnar hefur stigið til hliðar sem forstöðumaður á meðan það sem hann kallar gjörningaverður gengur yfir. Fréttastofan hefur ekki séð þessar nýju ásakanir en hefur upplýsingar um að þær verði lagðar fram síðar í dag eða á morgun. Konurnar þrjár sem á bakvið þær standa ætla að koma fram undir nafni. Áður hafa fimm konur sent krossinum yfirlýsingar um að Gunnar Þorsteinsson hafi áreitt þær kynferðislega. Stjórn Krossins ætlar að boða til safnaðarfundar þar sem kallað verður eftir sjónarmiðum um hvernig bregðast skuli við þessum ásökunum en Gunnar tilkynnti í gær að hann ætli að stíga til hliðar á meðan málið er til lykta leitt. Krossinn stofnar fagráð Sigurbjörg Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Krossins og dóttir Gunnars Þorsteinssonar, segir í samtali við fréttastofu að málið hafi verið rætt á stjórnarfundi í gær og að þetta sé niðurstaðan. Stjórnin hefur rætt um að setja saman sérstakt fagráð utankomandi sérfræðinga til að fjalla um ásakanir þess efnis að Gunnar hafi áreitt fimm konur kynferðislega en sú hugmynd verður borin undir söfnuðinn áður en ákvörðun verður tekin um framhaldið. Á meðan þessu stendur mun Gunnar Þorsteinsson ekki gegna hlutverki forstöðumanns. Hann tilkynnti það á heimasíðu Krossins í gærkvöldi. Þar segir að þrátt fyrir þann stuðning sem hann segist hafi fengið á samkomu í gær fari hann þess á leit við stjórn safnaðarins að fá að stíga til hliðar sem forstöðumaður, a.m.k. tímabundið meðan þetta gjörningaveður gengur yfir eins og Gunnar orðar það. Í yfirlýsingu sinni biður Gunnar um skilning og umburðarlyndi.
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Fleiri fréttir Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Sjá meira