Greining: Kaupin á evrubréfum tvímælalaust jákvæð 16. júní 2010 11:50
Greining Íslandsbanka segir að kaup ríkisins á evrubréfum sem tilkynnt var um í morgun sé tvímælalaust jákvæð aðgerð að hennar mati.Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að ætlun ríkissjóðs er að kaupa bréf fyrir allt að 300 milljónir evra að þessu sinni, en þó áskilur ríkið sér rétt til þess að hækka eða lækka þessa fjárhæð að vild. Lágmarks kaupverð er 0,95 cent fyrir evru nafnverðs í 2011-flokkum en 0,9625 cent fyrir evru nafnverðs í 2012-flokknum. Er það lítillega undir sölutilboðum þessara flokka samkvæmt Reuters í dag.Eigendur bréfanna geta hins vegar boðið ríkissjóði þau til sölu á hærra verði en lágmarksverðinu, og ræður hæsta samþykkta verð söluverði til allra samþykktra seljenda í hvorum flokki fyrir sig. Áætlað er að loka fyrir tilboð þann 22. júní næstkomandi.„Með þessu vilja yfirvöld væntanlega senda þau skilaboð út á markaðinn að nægilegt borð sé fyrir báru í gjaldeyrisforða landsins til að greiða upp ofangreinda flokka, en þeir eru meginhluti erlendra skuldbindinga ríkissjóðs sem gjaldfalla næstu tvö ár," segir í Morgunkorninu.„Aðgerðin er tvímælalaust jákvæð að mati okkar. Í raun ætti annað af tvennu að gerast: Í fyrsta lagi gæti töluverður hluti eigenda bréfanna verið tilbúinn til að selja þau á eða nærri lágmarksverðinu og hefur ríkissjóður þá sparað sér greiðslu á þeim hluta höfuðstólsins sem svarar til afsláttar frá nafnverði þegar kemur að gjalddaga.Á hinn bóginn gætu fjárfestar reynst tregir til að selja þessi bréf með afslætti, og má þá vænta þess að krafa þeirra á eftirmarkaði erlendis, og þá væntanlega einnig skuldatryggingarálag ríkissjóðs, lækki í kjölfarið. Við höfum áður bent á að eftir stækkun virks gjaldeyrisforða Seðlabankans síðustu mánuðina eru yfirgnæfandi líkur á að ríkissjóður muni greiða þessa skuldabréfaflokka upp með skilum á gjalddaga þeirra og í því ljósi virðist krafa þeirra á eftirmarkaði, og einnig skuldatryggingarálag á Ísland til skemmri tíma litið, hærri en innistæða er fyrir."
Mest lesið Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Sjá meira