Viðskipti innlent

Greining: Kaupin á evrubréfum tvímælalaust jákvæð

Greining Íslandsbanka segir að kaup ríkisins á evrubréfum sem tilkynnt var um í morgun sé tvímælalaust jákvæð aðgerð að hennar mati.

Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að ætlun ríkissjóðs er að kaupa bréf fyrir allt að 300 milljónir evra að þessu sinni, en þó áskilur ríkið sér rétt til þess að hækka eða lækka þessa fjárhæð að vild. Lágmarks kaupverð er 0,95 cent fyrir evru nafnverðs í 2011-flokkum en 0,9625 cent fyrir evru nafnverðs í 2012-flokknum. Er það lítillega undir sölutilboðum þessara flokka samkvæmt Reuters í dag.

Eigendur bréfanna geta hins vegar boðið ríkissjóði þau til sölu á hærra verði en lágmarksverðinu, og ræður hæsta samþykkta verð söluverði til allra samþykktra seljenda í hvorum flokki fyrir sig. Áætlað er að loka fyrir tilboð þann 22. júní næstkomandi.

„Með þessu vilja yfirvöld væntanlega senda þau skilaboð út á markaðinn að nægilegt borð sé fyrir báru í gjaldeyrisforða landsins til að greiða upp ofangreinda flokka, en þeir eru meginhluti erlendra skuldbindinga ríkissjóðs sem gjaldfalla næstu tvö ár," segir í Morgunkorninu.

„Aðgerðin er tvímælalaust jákvæð að mati okkar. Í raun ætti annað af tvennu að gerast: Í fyrsta lagi gæti töluverður hluti eigenda bréfanna verið tilbúinn til að selja þau á eða nærri lágmarksverðinu og hefur ríkissjóður þá sparað sér greiðslu á þeim hluta höfuðstólsins sem svarar til afsláttar frá nafnverði þegar kemur að gjalddaga.

Á hinn bóginn gætu fjárfestar reynst tregir til að selja þessi bréf með afslætti, og má þá vænta þess að krafa þeirra á eftirmarkaði erlendis, og þá væntanlega einnig skuldatryggingarálag ríkissjóðs, lækki í kjölfarið. Við höfum áður bent á að eftir stækkun virks gjaldeyrisforða Seðlabankans síðustu mánuðina eru yfirgnæfandi líkur á að ríkissjóður muni greiða þessa skuldabréfaflokka upp með skilum á gjalddaga þeirra og í því ljósi virðist krafa þeirra á eftirmarkaði, og einnig skuldatryggingarálag á Ísland til skemmri tíma litið, hærri en innistæða er fyrir."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×