Rökkvi skorar á Dóra DNA í jújítsú 9. apríl 2010 04:00 Gullverðlaunahafinn Rökkvi Vésteinsson hefur skorað á rapparann og uppistandarann Dóra DNA að mæta sér í jújítsú-glímu. fréttablaðið/vilhelm „
Ef hann getur ekki pakkað saman hálfgráhærðum karli á fertugsaldri eins og mér ætti hann bara að skammast sín,“ segir uppistandarinn Rökkvi Vésteinsson. Hann hefur skorað á annan uppistandara, Dóra DNA, að keppa við sig í brasilískri jújítsú-glímu. Rökkvi vann nýverið tvenn gullverðlaun á jújítsú-móti í Hafnarfirði og er því með sjálfstraustið í botni. Dóri hefur einnig stundað íþróttina auk þess sem hann hefur lýst bardagaíþróttum í sjónvarpi. „Maður er loksins farinn að vinna eitthvað á gamalsaldri. Betra er seint en aldrei,“ segir Rökkvi um gullverðlaunin sem hann vann í -81 kg flokki og í opnum flokki hvítra belta. Dóri er töluvert þyngri en Rökkvi og gæti viðureignin því orðið athyglisverð. „Ég veit ekki alveg hvað hann er góður í þessu en ég hugsa að hann sé tuttugu kílóum þyngri en ég. Þetta ætti að verða spennandi glíma ef hann tekur áskoruninni.“ Rökkvi vill ekki meina að allt púðrið myndi fara í að segja brandara í viðureign þessara tveggja uppistandara, en Dóri hefur stigið á svið fyrir hönd Mið-Íslands. „Það verður kannski fyrir bardagann og eftir hann. Ef maður nær yfirburðastöðu gæti maður kannski hæðst að honum.“ Í samtali við Fréttablaðið sagðist Dóri ekki ætla að taka áskoruninni en vildi annars ekkert tjá sig um málið. - fb
Mest lesið Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Fleiri fréttir Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Sjá meira