Metan í einum grænum Sveinbjörn Ragnar Árnason skrifar 15. júlí 2010 06:00 Félagi minn lét setja metangas orkugjafa í ameríska pallbílinn sinn um daginn. Nú keyrir hann um á grænni orku. Ameríski pallbíllinn nær allt að 300 km á hleðslunni. Sparnaðurinn er umtalsverður, rúmlega helmingi ódýrara er að aka á metangasi miðað við bensín-orkugjafann. Ef þú verður metanlaus, ýtir þú á einn takka í mælaborðinu á bílnum þínum og þú skiptir yfir á bensín-orkugjafann eins og ekkert væri. Metan er mengunarlaus orkugjafi, við brunann verður nánast ekkert eftir af skaðlegum efnum fyrir andrúmsloftið. Félagi minn bauð mér á rúntinn. Hann var stoltur þegar hann sagði mér að nú væri hann að keyra á „prumpinu". Ekki var að heyra annað en að venjulegt vélarhljóð bærist úr vélarsal pallbílsins. Það tekur ca. 6-7 mánuði að borga fjárfestinguna upp miðað við venjulega notkun heimilisbíls. Því miður eru bara tvær áfyllingarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu. Auðvitað á að fara í átaksverkefni og koma upp áfyllingarstöðvum hringinn í kringum landið. Hvetja á bíleigendur til að metanvæða bílaflotann. Geta má þess að bíllinn notast við metangasið óháð bensín-orkugjafanum og öfugt að sjálfsögðu. Bílvélin ræsir sig upp á bensínorkugjafanum og er á því eða þar til vélin nær ca 60 gráðu hita. Þá skiptir hann sjálfkrafa yfir á metan, sé hann stilltur þannig. Undirritaður er sannfærður um að metan sé málið. Það er gjaldeyrissparandi, mengar nánast ekki neitt og er miklu ódýrari orkugjafi fyrir bíleigendur. Með því að styðja við metannotkun á Íslandi er verið að skapa meiri atvinnu og eftir breytingu er bílinn þinn „grænn" og nýtur sömu forréttinda og aðrir grænir bílar. Undirritaður skorar á stjórnvöld að búa til ábatakerfi fyrir bíleigendur og þá sem sérhæfa sig í ísetningu á slíkum búnaði. Hægt væri t.d. að veita endurgreiðslu á virðisaukaskatti til þeirra sem breyta bílum sínum yfir á metangas. Ef sameiginlegt átak Íslendinga væri að koma 5% bifreiða landsmanna á metangas næstu 5 ár væri hægt að spara umtalsvert í gjaldeyri fyrir þjóð sem er með gjaldeyrishöft. Geta má þess að talið er að ca. 10.000 evrur sparast við hvern bíl sem breytt er í metanorkugjafa á Íslandi. Keyrðu á umhverfisvænni innlendri orku, það sparar gjaldeyri, eykur atvinnu, mengar ekki og sparar peninginn fyrir bíleigandann. Metan í einum grænum! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sanna er Zohran Mamdani Reykjavíkur Alfreð Sturla Böðvarsson Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskins virði? Daði Pálsson Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun 414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir Skoðun Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu Skoðun Hugleiðing á 1. maí. Steinar Harðarson Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Loftslagsmál snúast um jöfnuð og lífsgæði Skúli Helgason skrifar Skoðun Sanna er Zohran Mamdani Reykjavíkur Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskins virði? Daði Pálsson skrifar Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu skrifar Skoðun Borgin sem hætti að hlusta skrifar Skoðun Virðing, virkni og góð lífsgæði alla ævi Ellý Tómasdóttir,Ólafía Ingólfsdóttir skrifar Skoðun 414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir skrifar Skoðun Barátta sem skiptir sköpum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason skrifar Skoðun 1. maí: Sóknarfæri í jafnrétti eða skref aftur á bak? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Styrkur okkar er velferð allra Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar Skoðun Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjörður fyrir fólk Árni Stefán Guðjónson skrifar Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri á vinnumarkaði Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hugleiðing á 1. maí. Steinar Harðarson skrifar Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð? Ásthildur Sturludóttir skrifar Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bestum borgina fyrir skynsegið fólk! Olga Margrét Cilia skrifar Skoðun Pólland að verða efnahagsveldi - kallar eftir fleira fólki Jónas Guðmundsson skrifar Skoðun Lægri skattar eru réttlætismál fyrir ungt fólk Arnar Elvarsson skrifar Skoðun Ég lifi í draumi! Ingvar Örn Ákason skrifar Skoðun Neyðarkall úr Eyjum Hallgrímur Steinsson skrifar Skoðun Hvað er svona gott við að búa í Kópavogi? Sveinn Gíslason skrifar Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald skrifar Sjá meira
Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson Skoðun
Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar
Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar
Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson Skoðun