Björgvin Páll: Samheldnin mikil í hópnum Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Linz skrifar 22. janúar 2010 21:15 Björgvin Páll Gústavsson sést hér verja frá Austurríkismönnum. Mynd/Leena Manhart
Björgvin Páll Gústavsson segir samheldnin sem ríkir í íslenska landsliðinu muni fleyta því langt. Hann segir enn fremur að liðið sé vel í stakk búið til að takast á við persónuleg áföll sem koma upp í leikjum liðsins. „Þetta er það góður hópur sem hefur að geyma það sterka einstaklinga að menn styðja hverja aðra," sagði Björgvin við Vísi í dag. Hreiðar Guðmundsson, félagi Björgvins í landsliðinu, datt þegar Austurríki skoraði jöfnunarmark sitt í blálok leiksins gegn Íslandi í gær. „Ég hef engar áhyggjur af Hreiðari. Hann er sterkur strákur og er alveg með þetta. Hann verður alltaf klár í slaginn. Það er erfitt að lenda í svona löguðu og óheppnin hjá honum var alger. Það eru ekki alltaf jólin í boltanum." Björgvin segir margt ágætt við markvörslu hans og Hreiðars á mótinu til þessa en að margt sé hægt að bæta. „Ég er ánægður með sumt en ekki nógu sáttur heilt yfir. En það er eitthvað sem við getum unnið í. Það þarf að bæta sambandið á milli markvarðar og varnar og það hefur verið talsvert óöryggi í þessu hjá okkur." „Þetta small vel hjá okkur í fyrri hálfleiknum gegn Serbíu og ég held að það sé bara tímaspursmál hvenær það gerist aftur. Við fáum næst tækifæri gegn Dönum til þess." „Getan og hæfileikarnir eru til staðar hjá þessu liði. En þetta er stutt mót og það er hægt að klúðra öllu á fáum mínútum. Nú kemur stóra verkefnið og við vissum alltaf að leikurinn gegn Dönum myndi skipta sköpum. Nú sjáum við úr hverju við erum gerðir."
Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Íslenski boltinn Hljóp á hraðasta tíma ársins Sport Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira