Kristmundur Axel með nýtt lag 28. október 2010 10:00 Kristmundur Axel og Elín Lovísa voru að senda frá sér lagið Það birtir alltaf til. Elín Lovísa er yngri systir Klöru úr Nylon. Í bakgrunni eru upptökustjórarnir í Stop Wait Go.Fréttablaðið/Vilhelm „
Þetta er mjög gott lag, svo vonandi gengur þetta upp hjá okkur,“ segir Kristmundur Axel Kristmundsson sem frumflutti lagið „Það birtir alltaf til“ á tónlistarstöðinni FM 957 í gær. Kristmundur Axel sló í gegn í Söngkeppni framhaldsskólanna síðasta vor þegar hann rappaði lag um pabba sinn. Kristmundur hefur síðustu mánuði fylgt eftir vinsældum lagsins, Komdu til baka, en nú er hann tilbúinn að taka næsta skref. Með honum syngur Elín Lovísa Elíasdóttir, en hún er yngri systir söngkonunnar Klöru Óskar Elíasdóttur sem söng með Nylon en er nú í söngflokknum The Charlies. „Elín Lovísa er rosalega góð og það var gaman að vinna með henni,“ segir Kristmundur. Elín sjálf var ekki viðstödd í hljóðveri FM 957 þegar lagið var frumflutt. „Ég var ekki á staðnum en var með stillt á FM og fannst þetta æði,“ segir Elín Lovísa. Klara Ósk, systir Elínar, er löngu orðin þekkt innan tónlistargeirans og því athyglisvert að vita hvort Elín stefni hærra en systir sín. „Ef þetta lag slær í gegn er aldrei að vita hvað tekur við. Er hægt að verða eitthvað frægari en hún?“ segir Elín og hlær. Kristmundur Axel segist ekki vita hvort von sé á fleiri lögum frá honum. „Við byrjum bara á þessu og sjáum svo til hvað gerist.“ Það voru strákarnir í Stop Wait Go sem sáu um útsetninguna á laginu en þeir hafa verið að útsetja lög fyrir The Charlies, Frikka Dór, Haffa Haff, Steinda jr. og fleiri.- ka
Mest lesið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Kát á kynfræðslukarnivali Menning Menningarsprautur í hvísluleik Menning Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið Bombur á Barokki á klúbbnum Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Fleiri fréttir „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Sjá meira