Hermann Jón Tómasson: Ríkisstjórnin á leik Hermann Jón Tómasson skrifar 27. maí 2010 09:06 Ferðaþjónusta hefur blómstrað á Akureyri síðustu misserin. Akureyrarbær hefur komið myndarlega að markaðsmálum ferðaþjónustunnar með þeim árangri að bærinn er nú vinsælasti áfangastaður íslenskra ferðamanna jafnt sumar sem vetur. Möguleikar til frekari uppbyggingar á þessu sviði eru sannarlega til staðar. Nýtt menningar- og ráðstefnuhús, skíðasvæðið í Hlíðarfjalli, Tröllaskaginn með alla sína möguleika til útivistar og stórbrotin náttúran í Þingeyjarsýslum. Þessi sérkenni og fjölmörg fleiri skapa möguleika til frekari sóknar. Rekstraraðilar í ferðaþjónustu gera sér góða grein fyrir þessu sem má m.a. merkja af þeim áhuga sem nú er á að fjölga hótel- og gistirýmum á Akureyri. Ef rétt er á spilum haldið er hægt að fjölga til muna erlendum ferðamönnum á svæðinu, sérstaklega þeim sem hingað sækja utan hefðbundins ferðamannatíma, og auka þar með gjaldeyristekjur þjóðarinnar. Það yrði kærkomin búbót fyrir þjóðarbúið. Forsenda þessa árangurs er beint millilandaflug um Akureyrarflugvöll. Undanfarnar vikur hafa óblíð náttúruöflin sannarlega minnt á sig á Íslandi. Samgöngur röskuðust um víða veröld og hér á landi gerðist það hvað eftir annað að ekki var hægt að fljúga um Keflavíkurflugvöll. Akureyrarflugvöllur gengdi lykilhlutverki í að leysa þau vandamál sem upp komu og þörfin fyrir góða aðstöðu fyrir flug til og frá landinu utan suðvesturhornsins kom berlega í ljós. En við vorum jafnframt minnt á að aðstaðan hér á Akureyri er engan veginn fullnægjandi. Ef völlurinn á að geta þjónað hlutverki sem millilandaflugvöllur verður að byggja upp flughlað og stækka flugstöðina. Þetta er eitt þeirra verkefna sem legið hefur á borðum stjórnvalda og beðið afgreiðslu undanfarna mánuði. Tillögur um framkvæmdina eru tilbúnar og þess vegna væri hægt að ráðast í hana með skömmum fyrirvara. Það væri svo sannarlega skynsamleg aðgerð sem tryggði flugöryggi landsins, opnaði nýja möguleika til eflingar ferðaþjónustu og kæmi sem innspýting í erfitt atvinnuástand á Akureyri á hárréttum tíma. Það er ekki eftir neinu að bíða. Rökin eru augljós og hægt er að ráðast í framkvæmdir með stuttum fyrirvara. En við bíðum eftir stjórnvöldum. Þaðan þurfa að koma skýr svör strax. Það gengur ekki að mikilvæg verkefni sem eiga augljósan rétt á sér séu látin bíða von úr viti. Ég skora á ríkisstjórnina að reka af sér slyðruorðið og gefa grænt ljós á framkvæmdir á Akureyrarflugvelli nú þegar. Það eru skilaboð um að ríkið ætli raunverulega að leggja atvinnuuppbyggingu lið, það eru skilaboð um það að ríkisstjórnin standa með Íslandi í uppbyggingu atvinnu- og efnahagslífs. Höfundur er bæjarstjóri á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson Skoðun Skoðun Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson skrifar Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Meðferð ríkisvaldsins á máli lífslokalæknisins Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar Sjá meira
Ferðaþjónusta hefur blómstrað á Akureyri síðustu misserin. Akureyrarbær hefur komið myndarlega að markaðsmálum ferðaþjónustunnar með þeim árangri að bærinn er nú vinsælasti áfangastaður íslenskra ferðamanna jafnt sumar sem vetur. Möguleikar til frekari uppbyggingar á þessu sviði eru sannarlega til staðar. Nýtt menningar- og ráðstefnuhús, skíðasvæðið í Hlíðarfjalli, Tröllaskaginn með alla sína möguleika til útivistar og stórbrotin náttúran í Þingeyjarsýslum. Þessi sérkenni og fjölmörg fleiri skapa möguleika til frekari sóknar. Rekstraraðilar í ferðaþjónustu gera sér góða grein fyrir þessu sem má m.a. merkja af þeim áhuga sem nú er á að fjölga hótel- og gistirýmum á Akureyri. Ef rétt er á spilum haldið er hægt að fjölga til muna erlendum ferðamönnum á svæðinu, sérstaklega þeim sem hingað sækja utan hefðbundins ferðamannatíma, og auka þar með gjaldeyristekjur þjóðarinnar. Það yrði kærkomin búbót fyrir þjóðarbúið. Forsenda þessa árangurs er beint millilandaflug um Akureyrarflugvöll. Undanfarnar vikur hafa óblíð náttúruöflin sannarlega minnt á sig á Íslandi. Samgöngur röskuðust um víða veröld og hér á landi gerðist það hvað eftir annað að ekki var hægt að fljúga um Keflavíkurflugvöll. Akureyrarflugvöllur gengdi lykilhlutverki í að leysa þau vandamál sem upp komu og þörfin fyrir góða aðstöðu fyrir flug til og frá landinu utan suðvesturhornsins kom berlega í ljós. En við vorum jafnframt minnt á að aðstaðan hér á Akureyri er engan veginn fullnægjandi. Ef völlurinn á að geta þjónað hlutverki sem millilandaflugvöllur verður að byggja upp flughlað og stækka flugstöðina. Þetta er eitt þeirra verkefna sem legið hefur á borðum stjórnvalda og beðið afgreiðslu undanfarna mánuði. Tillögur um framkvæmdina eru tilbúnar og þess vegna væri hægt að ráðast í hana með skömmum fyrirvara. Það væri svo sannarlega skynsamleg aðgerð sem tryggði flugöryggi landsins, opnaði nýja möguleika til eflingar ferðaþjónustu og kæmi sem innspýting í erfitt atvinnuástand á Akureyri á hárréttum tíma. Það er ekki eftir neinu að bíða. Rökin eru augljós og hægt er að ráðast í framkvæmdir með stuttum fyrirvara. En við bíðum eftir stjórnvöldum. Þaðan þurfa að koma skýr svör strax. Það gengur ekki að mikilvæg verkefni sem eiga augljósan rétt á sér séu látin bíða von úr viti. Ég skora á ríkisstjórnina að reka af sér slyðruorðið og gefa grænt ljós á framkvæmdir á Akureyrarflugvelli nú þegar. Það eru skilaboð um að ríkið ætli raunverulega að leggja atvinnuuppbyggingu lið, það eru skilaboð um það að ríkisstjórnin standa með Íslandi í uppbyggingu atvinnu- og efnahagslífs. Höfundur er bæjarstjóri á Akureyri.
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar