Um afskriftir lána Oddur Friðriksson skrifar 6. júlí 2010 06:15 Fyrir síðustu alþingiskosningar voru hafðar uppi yfirlýsingar um að skjaldborg yrði slegið um heimili landsmanna, fögur fyrirheit og kjósendur trúðu þeim, síðan er liðið rúmt ár. Í sl. viku litu þó dagsins ljós lög sem miða að því að bæta stöðu skuldsettustu heimilanna og er það vel. Þessar aðgerðir gera fólki kleift að losna undan skuldum sem það ræður ekki við eins og félagsmálaráðherra orðar það. Talið er að aðgerðir þessar komi til með að gagnast allt að fimm þúsund heimilum en vitað er að allt að 22 þúsund heimili þurfi á umtalsverðum skuldbreytingum að halda. Þar mun fyrst og fremst vera miðað að frestunum afborgana og lengingu lánstíma - eða því að almenningur skuli borga og lánveitendur fá sitt. Nánast óþekkt er að almennir lánþegar hafi fengið afskriftir á sínum lánum eða hluta þeirra frá því að fjármálakerfið fór hér á hliðina. Afskriftir lána eru þó vel þekktar - þær eiga sér stað innan skilanefnda bankanna, til þeirra sem voru gerendur að þessu hruni - þeirra sem fengu kúlulánin til að viðhalda röngu verði bankanna, þeir skulu sleppa við að vera ábyrgir gjörða sinna, og koma út úr þessu hruni með skuldlausum eignum sem keyptar voru fyrir arðinn af röngum hagnaðartölum - er nema von að almenning svíði. Það á að tala um leikendur á sviðinu, þar voru bankar, atvinnnufjárfestar og almennir lántakendur, þar voru líka stjórnvöld sem klöppuðu bankana upp, löngu eftir að í óefni var komið. Almennir lántakendur, heimilin fóru í greiðslumat fagmanna (að því að þeir héldu) og lántaka þeirra byggðist alfarið á útkomu úr því mati, það er þeirra helsta sök, að hafa treyst óheiðarlegum bankamönnum og óábyrgum stjórnmálamönnum. Við upphaf þessa hruns var kannski ekki óeðlilegt að álykta sem svo að um alþjóðlegt fjármálahrun væri að ræða og boðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar gætu komið okkur út úr verstu brimsköflunum og meirihluti almennings var þessu sammála og hefur frá hruni verið reiðubúinn eða neyddur til að leggja á heimili sín þær auknu byrðar sem af hruninu leiddu, s,s hækkað verðlag. Við útkomu skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis breyttist allt. Í ljós kom svart á hvítu að bönkunum hafði verið rænt innan frá og landsmenn allir plataðir. Hæstiréttur hefur kveðið upp sinn dóm varðandi gengistryggingu almennra bílalána og ljóst er af yfirlýsingum ráðamanna að vegið er að styrkleika bankakerfisins. Seðlabanki Íslands og FME hafa lagt fram hugmyndir sem miða einhverjum sanngirnissjónarmiðum til handa fjármögnunarfyrirtækjunum, (þeim sem lögbrotið frömdu) og viðhalds núverandi efnahagskerfis. Nokkuð ljóst er að lántakendur munu ekki verða viðhlæjendur þeirra sem vinna að því að fullkomna glæpinn. Staðreyndir tala sínu máli. Það liggur fyrir að hafið er mál þar sem þess verður krafist að þeirri stökkbreytingu verðtryggðra lána sem varð hér í aðdraganda efnhagshrunsins verði skipt á milli lántakenda og fjármagnseigenda á grundvelli samningalaganna. Það skyldi enginn útiloka það að dómstólar taki ekki tillit til hagsmuna lántaka í því máli. Gangi það eftir er ljóst að núverandi efnhagskerfi er hrunið - og þá mun koma til afskrifta hvort sem mönnum líkar það betur eða verr. Í þessu ljósi hefur ríkisstjórn félagshyggjuaflanna val, hún getur gengið á fund kröfuhafanna og tilkynnt þeim að leikurinn sé tapaður og hjá frekari afskriftum verði ekki komist. Hún getur líka valið þá leið sem nú er farin að láta afleiðingar efnahagshrunsins lenda hvað þyngst á íslenskum heimilum og fyrirtækjum. Vissulega myndi þessi stefna henta fjármagnsöflunum og viðhalda því efnahagskerfi sem nú stendur á brauðfótum. Kjósendur félagshyggjuaflanna bíða nú eftir hvora leiðina stjórnvöld kjósa að fara, fylgja réttlæti fjármálaaflanna og hagkerfi sem þarfnast uppstokkunar eða hvort þau þori að standa með yfirskuldsettum heimilum og fyrirtækjum landsmanna og byggja upp nýtt Ísland. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sanna er Zohran Mamdani Reykjavíkur Alfreð Sturla Böðvarsson Skoðun Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskins virði? Daði Pálsson Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Loftslagsmál snúast um jöfnuð og lífsgæði Skúli Helgason Skoðun Alþjóðadagur hryggbólgusjúkdóma: Ekki bara bakverkir Jóhann Pétur Guðvarðarson Skoðun 414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir Skoðun Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson Skoðun Hugleiðing á 1. maí. Steinar Harðarson Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu Skoðun Skoðun Skoðun Tekjutengjum frístundastyrkinn Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur hryggbólgusjúkdóma: Ekki bara bakverkir Jóhann Pétur Guðvarðarson skrifar Skoðun Loftslagsmál snúast um jöfnuð og lífsgæði Skúli Helgason skrifar Skoðun Sanna er Zohran Mamdani Reykjavíkur Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskins virði? Daði Pálsson skrifar Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu skrifar Skoðun Borgin sem hætti að hlusta skrifar Skoðun Virðing, virkni og góð lífsgæði alla ævi Ellý Tómasdóttir,Ólafía Ingólfsdóttir skrifar Skoðun 414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir skrifar Skoðun Barátta sem skiptir sköpum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason skrifar Skoðun 1. maí: Sóknarfæri í jafnrétti eða skref aftur á bak? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Styrkur okkar er velferð allra Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar Skoðun Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjörður fyrir fólk Árni Stefán Guðjónson skrifar Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri á vinnumarkaði Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hugleiðing á 1. maí. Steinar Harðarson skrifar Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð? Ásthildur Sturludóttir skrifar Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bestum borgina fyrir skynsegið fólk! Olga Margrét Cilia skrifar Skoðun Pólland að verða efnahagsveldi - kallar eftir fleira fólki Jónas Guðmundsson skrifar Skoðun Lægri skattar eru réttlætismál fyrir ungt fólk Arnar Elvarsson skrifar Skoðun Ég lifi í draumi! Ingvar Örn Ákason skrifar Skoðun Neyðarkall úr Eyjum Hallgrímur Steinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Tekjutengjum frístundastyrkinn Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar
Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar
Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar