Kristján Möller: Höfum ekki efni á átökum á vinnumarkaði 22. mars 2010 18:42 Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Alþingi samþykkti í dag lögbann við verkfalli flugvirkja Icelandair. Millilandaflug Icelandair hefur legið niðri í allan dag vegna verkfallsins en áætlunarflug hófst að nýju nú skömmu fyrir fréttir. Samgönguráðherra segir að þjóðarbúið hafi ekki efni á átökum á vinnumarkaði. Uppúr slitnaði í kjaraviðræðum flugvirkja og Icelandair í gær. Flugvirkjar kröfðust 15 prósenta launahækkunar en Icelandair bauð 11 prósenta hækkun. Verkfall hófst því klukkan eitt nótt og í kjölfarið stöðvaðist allt millilandaflug Icelandair frá Keflavík. Allur flugvélafloti Icelandair sat því fastur á Keflavíkurflugvelli í morgun eftir vélarnar frá Bandaríkjunum höfðu lent. Um fjögur þúsund farþegar áttu bókað far með Icelandair í dag meðal annars þessir Norðmenn sem áttuð bókað flug til Oslóar í morgun. Boðað var til auka ríkisstjórnarfundar í hádeginu þar sem frumvarp samgönguráðherra um bann við verkfalli flugvirkja var samþykkt. „Ég held að við þurfum á ýmsu öðru að halda núna heldur en að samgöngur til og frá landinu stöðvist," sagði Kristján Möller, samgönguráðherra, í hádeginu. Alþingi kom saman upp úr klukkan eitt til en lögbanni sem þessu hefur aðeins þrisvar sinnum verið beitt á síðustu tólf árum - síðast árið 2004. Þingmenn Hreyfingarinnar lögðust gegn frumvarpinu og þá vildu framsóknarmenn setja málið í gerðardóm. „Það er ekkert sjálfsagt mál að fara að setja bann á verkfall sérstaklega þegar um er að ræða einkafyrirtæki," sagði Guðmundur Steingrímsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á Alþingi í dag. Frumvarpið var samþykkt með 38 atkvæðum gegn tveimur. Flugvirkjar ætla að virða lögbannið og hófst áætlunarflug Icelandair að nýju nú skömmu fyrir fréttir. „Það er auðvitað aldrei gaman að grípa inn í svona mál en ég minni á að samningsrétturinn er áfram og aðilar geta komist að samkomulagi og þá tekur sá samningurinn við. Þetta er einfaldlega lög um að gera það ekki með verkfalli. Staða þjóðarbúsins er einfaldlega þannig núna að við þurfum ekki verkföll og átök á vinnumarkaði," sagði Kristján seinnipartinn í dag.
Tengdar fréttir Næstu upplýsingar um flug hjá Icelandair klukkan ellefu Enn hefur ekkert þokast í deilu flugvirkja og Icelandair og áætlunarflug liggur því enn niðri. Næstu upplýsingar berast klukkan ellefu. 22. mars 2010 09:14 Verið að verja Icelandair fyrir skaða með lögbanni „Samkvæmt þessu, þá eru engin rök í sjálfu sér fyrir lögbanninu annað en félagið skaðast af þessu. Landið lokast ekki. Við fljúgum í dag, fljúgum til allra landa,“ segir Matthías Imsland, framkvæmdarstjóri Icelandexpress en hann gagnrýnir stjórnvöld harðlega fyrir að samþykkja lögbann á verkfall flugvirkja hjá Icelandair en það var samþykkt af hálfu ríkisstjórnar í hádeginu í dag. Lögbannið þarf hinsvegar að samþykkja á Alþingi eigi það að taka gildi. 22. mars 2010 12:50 Ríkisstjórnarfundi frestað til hádegis Ríkisstjórnarfundi sem átti að halda klukkan tíu um lagasetningu á verkfall flugvirkja hjá Icelandair hefur verið frestað til klukkan tólf. Verfallið hófst klukkan eitt í nótt eftir að viðræður þeirra við félagið sigldu í strand hjá Ríkissáttasemjara í gærkvöldi. 22. mars 2010 09:50 Þinghlé framlengt vegna lögbanns á verkfall flugvirkja Fundur er ekki hafinn á Alþingi en til stóð að greiða atkvæði upp úr klukkan hálf fjögur í dag um lögbann á verkfallsaðgerðir flugvirkja. Fundinum var frestað til fimmtán mínútur í fjögur en frumvarpið er nú rætt innan samgöngumálanefndar á Alþingi. 22. mars 2010 15:33 Ríkisstjórn samþykkir að setja lögbann á verkfall flugvirkja Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt að setja lög á verkfall flugvirkja sem hófst í nótt. Þetta staðfesti Kristján Möller samgönguráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi í dag. 22. mars 2010 12:34 Flugumferðarstjórar líkja þingmönnum við rakka Félag íslenskra flugumferðarstjóra fordæmir inngrip ríkisstjórnar og Alþingis í kjaradeilu flugvirkja. Í yfirlýsingu frá þeim segir að ríkisstjórnin sýni einbeittan og ítrekaðan brotavilja þegar kemur að stjórnarskrárbundnum réttindum launþega í kjarabaráttu og alþingismenn koma hlaupandi eins og rakkar þegar kallið kemur til að stimpla gjörninginn. 22. mars 2010 15:40 Ríkisstjórnin hittist til að ræða verkfallið Ríkisstjórnin verður kölluð saman til fundar í dag, samkvæmt heimildum fréttastofunnar, til að fjalla um Verkfall flugvirkja hjá Icelandair, sem hófst klukkan eitt í nótt eftir að viðræður þeirra við félagið sigldu í strand hjá Ríkissáttasemjara í gærkvöldi. 22. mars 2010 08:41 Lögbann rætt í samgöngunefnd - Ögmundur fjarverandi Fundarhlé er á Alþingi vegna frumvarps um lögbann á verkfallsaðgerðir flugvirkja sem hafa lamað flug Icelandair. Málið er nú til umræðu í samgöngunefnd. 22. mars 2010 14:36 Icelandair stefnir á flug klukkan fjögur í dag Icelandair hefur ákveðið að stefna að því að hefja flug síðdegis í dag um klukkan fjögur en ríkisstjórn samþykkti að leggja fram frumvarp um lögbann á verkfall flugvirkja í hádeginu í dag, þó endanlegar ákvarðanir um það verði ekki teknar fyrr en Alþingi hefur lokið meðferð sinni. 22. mars 2010 13:14 Alþingi samþykkti lög á verkfall flugvirkja - Atli sat hjá Alþingi samþykkti klukkan fimm í dag lög sem stöðva verkfall flugvirkja sem starfa hjá Icelandair og hófst í morgun. Frumvarp samgönguráðherra var samþykkt með 38 atkvæðum gegn tveimur. Atli Gíslason, þingmaður VG, sat hjá. 22. mars 2010 17:20 Allur flugfloti Icelandair stoppar í dag vegna verkfallsins Verkfall flugvirkja hjá Icelandair hófst klukkan eitt í nótt eftir að viðræður þeirra við félagið sigldu í strand hjá Ríkissáttasemjara í gærkvöldi. Vélar félagsins frá Evrópu voru að tínast til Keflavíkur í nótt, en brottför þeirra seinkaði í gærmorgun vegna eldgossins. 22. mars 2010 06:48 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira
Næstu upplýsingar um flug hjá Icelandair klukkan ellefu Enn hefur ekkert þokast í deilu flugvirkja og Icelandair og áætlunarflug liggur því enn niðri. Næstu upplýsingar berast klukkan ellefu. 22. mars 2010 09:14
Verið að verja Icelandair fyrir skaða með lögbanni „Samkvæmt þessu, þá eru engin rök í sjálfu sér fyrir lögbanninu annað en félagið skaðast af þessu. Landið lokast ekki. Við fljúgum í dag, fljúgum til allra landa,“ segir Matthías Imsland, framkvæmdarstjóri Icelandexpress en hann gagnrýnir stjórnvöld harðlega fyrir að samþykkja lögbann á verkfall flugvirkja hjá Icelandair en það var samþykkt af hálfu ríkisstjórnar í hádeginu í dag. Lögbannið þarf hinsvegar að samþykkja á Alþingi eigi það að taka gildi. 22. mars 2010 12:50
Ríkisstjórnarfundi frestað til hádegis Ríkisstjórnarfundi sem átti að halda klukkan tíu um lagasetningu á verkfall flugvirkja hjá Icelandair hefur verið frestað til klukkan tólf. Verfallið hófst klukkan eitt í nótt eftir að viðræður þeirra við félagið sigldu í strand hjá Ríkissáttasemjara í gærkvöldi. 22. mars 2010 09:50
Þinghlé framlengt vegna lögbanns á verkfall flugvirkja Fundur er ekki hafinn á Alþingi en til stóð að greiða atkvæði upp úr klukkan hálf fjögur í dag um lögbann á verkfallsaðgerðir flugvirkja. Fundinum var frestað til fimmtán mínútur í fjögur en frumvarpið er nú rætt innan samgöngumálanefndar á Alþingi. 22. mars 2010 15:33
Ríkisstjórn samþykkir að setja lögbann á verkfall flugvirkja Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt að setja lög á verkfall flugvirkja sem hófst í nótt. Þetta staðfesti Kristján Möller samgönguráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi í dag. 22. mars 2010 12:34
Flugumferðarstjórar líkja þingmönnum við rakka Félag íslenskra flugumferðarstjóra fordæmir inngrip ríkisstjórnar og Alþingis í kjaradeilu flugvirkja. Í yfirlýsingu frá þeim segir að ríkisstjórnin sýni einbeittan og ítrekaðan brotavilja þegar kemur að stjórnarskrárbundnum réttindum launþega í kjarabaráttu og alþingismenn koma hlaupandi eins og rakkar þegar kallið kemur til að stimpla gjörninginn. 22. mars 2010 15:40
Ríkisstjórnin hittist til að ræða verkfallið Ríkisstjórnin verður kölluð saman til fundar í dag, samkvæmt heimildum fréttastofunnar, til að fjalla um Verkfall flugvirkja hjá Icelandair, sem hófst klukkan eitt í nótt eftir að viðræður þeirra við félagið sigldu í strand hjá Ríkissáttasemjara í gærkvöldi. 22. mars 2010 08:41
Lögbann rætt í samgöngunefnd - Ögmundur fjarverandi Fundarhlé er á Alþingi vegna frumvarps um lögbann á verkfallsaðgerðir flugvirkja sem hafa lamað flug Icelandair. Málið er nú til umræðu í samgöngunefnd. 22. mars 2010 14:36
Icelandair stefnir á flug klukkan fjögur í dag Icelandair hefur ákveðið að stefna að því að hefja flug síðdegis í dag um klukkan fjögur en ríkisstjórn samþykkti að leggja fram frumvarp um lögbann á verkfall flugvirkja í hádeginu í dag, þó endanlegar ákvarðanir um það verði ekki teknar fyrr en Alþingi hefur lokið meðferð sinni. 22. mars 2010 13:14
Alþingi samþykkti lög á verkfall flugvirkja - Atli sat hjá Alþingi samþykkti klukkan fimm í dag lög sem stöðva verkfall flugvirkja sem starfa hjá Icelandair og hófst í morgun. Frumvarp samgönguráðherra var samþykkt með 38 atkvæðum gegn tveimur. Atli Gíslason, þingmaður VG, sat hjá. 22. mars 2010 17:20
Allur flugfloti Icelandair stoppar í dag vegna verkfallsins Verkfall flugvirkja hjá Icelandair hófst klukkan eitt í nótt eftir að viðræður þeirra við félagið sigldu í strand hjá Ríkissáttasemjara í gærkvöldi. Vélar félagsins frá Evrópu voru að tínast til Keflavíkur í nótt, en brottför þeirra seinkaði í gærmorgun vegna eldgossins. 22. mars 2010 06:48