Stuðningur ESB við krónuna? 29. júní 2010 06:00
Í áliti meirihluta utanríkismálanefndar frá 9. júlí 2009 um þingsályktunartillögu um aðildarumsókn, sem þá lá fyrir Alþingi og var síðan samþykkt, segir að „komi til aðildarviðræðna beri að leggja kapp á að viðræður um gjaldmiðilsmál verði forgangsverkefni í viðræðuferlinu og því eigi að leita eftir samkomulagi við ESB og ECB um stuðning við krónuna." Einnig segir að meirihlutinn taki undir þau sjónarmið, sem fram hafi komið í báðum þeim þingsályktunartillögum sem lagðar voru fram á þingi um aðildarumsókn, að „Ísland leiti á fyrstu stigum viðræðna eftir sérstöku samkomulagi við ESB, og eftir atvikum evrópska seðlabankann, sem verið gæti stuðningur á næstu misserum við íslensku krónuna meðan á aðlögunarferli Íslands stæði." Að baki þessu býr fyrst og fremst sú hugsun, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, að það hljóti að vera Evrópusambandinu í hag ekki síður en Íslandi, að Íslendingar fái frá Evrópusambandinu aðstoð við að styrkja gjaldmiðilinn til að auðvelda aðlögun að myntbandalagi Evrópusambandsins og upptöku evru. Rökstuðningurinn er þessi: Við erum nú þegar á innri markaði Evrópska efnahagssvæðisins og höfum sótt um aðild að Evrópusambandinu. Íslenska krónan er örlítil mynt bundin í gjaldeyrishöft sem brjóta í bága við reglur Evrópska efnahagssvæðisins. Aðild að Evrópusambandinu fylgir að Ísland þarf að taka upp evru um leið og íslenskt efnahagslíf telst tilbúið til þess. Því betri stuðning sem Ísland fær við krónuna því fyrr má reikna með að landið verði fært um að skipta út krónunni fyrir evru. Hvort samningar takast um slíkan stuðning er óvíst, en á þessu verður þreifað um leið og viðræður hefjast fyrir alvöru, líklega strax í haust eða næsta vetur, enda hefur samninganefnd Íslands fyrrgreint meirihlutaálit utanríkismálanefndar að leiðarljósi í öllum störfum sínum.
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Fleiri fréttir Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Sjá meira