Aron: Verðum að lemja á Dönunum Henry Birgir Gunnarsson skrifar 23. janúar 2010 18:00 Aron Kristjánsson, EM-sérfræðingur.
Aron Kristjánsson, EM-sérfræðingur Vísis, er nokkuð bjartsýnn fyrir leikinn mikilvæga gegn Dönum á eftir. „Leikurinn leggst bara vel í mig. Það er alltaf gaman að mæta Dönum. Danir hafa mjög jafnt lið og mikla breidd. Hugsanlega mestu breiddina á mótinu en á móti kemur að í liðinu er engin stórstjarna ef svo má segja. Þeir keyra frábær hraðaupphlaup og hafa magnaða markverði en vörnin er ekkert alltaf frábær hjá þeim," sagði Aron sem þekkir vel til danska liðsins eftir að hafa þjálfað í Danmörku um árabil. „Lykilmaður hjá þeim er skyttan unga, Mikkel Hansen. Hann gerði Serbum lífið leitt og það þarf að stöðva hann. Labba út í hann og berja á honum. Honum líkar það illa eins og reyndar Dönum yfir höfuð," sagði Aron sem segir mikilvægt að Íslendingar berji hraustlega frá sér í leiknum. „Danir höndla það ekki vel þegar barið er á þeim. Það verður að vera brjáluð barátta í vörninni hjá okkur. Danir eru mjög hissa á okkar gengi og gætu mætt örlítið værukærir til leiks. Við þurfum að nýta okkur það og lemja almennilega á þeim. Lykillinn hjá okkur í dag er að Sverre og Ingimundur eigi algjöran toppleik. Annars eigum við ekki möguleika," sagði Aron sem vonast til þess að sjá meira af nafna sínum Pálmarssyni í þessum leik. „Við höfum spilað á of fáum mönnum til þessa í mótinu og lykilleikmenn verða fljótt þreyttir með þessu áframhaldi. Snorri hefur stýrt sóknarleiknum afar vel en skotógnunin hefur ekki verið næg. Ég vil sjá meira af Aroni í þessum leik því hann kemur með eitthvað nýtt og einnig er mikil skotógnun af honum," sagði Aron en hann spáir islenskum sigri. „Ég held að við vinnum þennan leik með tveim mörkum. Það hefur verið margt jákvætt í leik íslenska liðsins til þessa."
Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Íslenski boltinn Hljóp á hraðasta tíma ársins Sport Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira