Markvörður Austurríkis: Mikil óánægja í Serbíu Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Linz skrifar 23. janúar 2010 16:30 Mynd)Diener/Leena Manhart
Markvörður austurríska landsliðsins, Nikola Marinovic, segir að serbneska landsliðið sé undir mikilli pressu fyrir leik kvöldsins gegn Austurríki á EM í handbolta. Sjálfur er Marinovic fæddur og uppalinn í Serbíu en hann spilar nú fyrir hönd austurríska landsliðsins. Hann er á mála hjá þýska úrvalsdeildarfélaginu Balingen. Marinovic hefur ekki náð sér almennilega á strik í keppninni en varði þó gríðarlega mikilvægt skot frá Guðjóni Val Sigurðssyni þegar hálf mínúta var eftir af leik Austurríkis og Íslands á fimmtudagskvöldið. Þá skoraði Austurríki þrjú mörk á síðustu 50 sekúndum leiksins og tryggði sér 37-37 jafntefli. „Ég var í miklu sjokki eftir leikinn og gat fyrst sett þetta allt í samhengi í nótt,“ sagði hann á blaðamannafundi austurríska landsliðsins í gær. „Ég er auðvitað afar ánægður með stigið og tel að við séum á réttri leið. Við verðum þó að halda áfram að bæta okkur.“ Austurríki mætir Serbíu í fyrri leik dagsins í lokaumferð riðlakeppninnar í Linz. Sigurvegari leiksins kemst áfram í milliriðlakeppnina en jafntefli mun duga Austurríki. Serbar töpuðu fyrir Dönum á fimmtudagskvöldið og þurfa því á sigri að halda í kvöld. Marinovic þekkir vel til í Serbíu og segir að mikil óánægja ríki meðal handboltaáhugamanna þar. „Það er frekar neikvæð umfjöllun um liðið í fjölmiðlum. Það er kominn nýr landsliðsþjálfari [Saed Hasanefendic] og nýr leikstíll. Liðið þykir spila leiðinlegri handbolta en á HM í fyrra og því eru stuðningsmenn liðsins mjög óánægðir. Liðið er því undir mikilli pressu eins og er.“ Hann segir að það verði sérstakt fyrir sig að spila í þessum leik. „Ég þekki alla þessa stráka mjög vel og til dæmis búa foreldrar mínir enn í Serbíu. En þetta er eitthvað sem ég mun ekki hugsa um á meðan leiknum stendur.“
Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Íslenski boltinn Hljóp á hraðasta tíma ársins Sport Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira