Snorri: Hef góða tilfinningu fyrir leiknum Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Linz skrifar 23. janúar 2010 13:30 Mynd/Diener/Leena Manhart
Snorri Steinn Guðjónsson segir að það sé margt jákvætt í stöðunni fyrir leik Íslands og Danmerkur á EM í handbolta í kvöld. Með sigri kemst Ísland áfram í milliriðlakeppnina sem sigurvegari riðilsins og með þrjú stig í farteskinu. „Við erum þó að fara að spila við Dani og þeir eru ekkert léttmeti í boltanum. Við höfum þó sýnt góða takta á þessu móti. Sóknarleikurinn hefur verið frábær og við höfum leyst allar varnir sem við höfum fengið á móti okkur.“ „Við þurfum því að halda uppteknum hætti því þetta kemur ekki að sjálfu sér. Ef við náum aðeins að þétta varnarleikinn þá erum við í hrikalega góðum málum. Við skoruðum 37 mörk gegn Austurríki en eigum samt hraðaupphlaupin inni. Það gefur manni líka smá von.“ Ísland missti unninn leik í jafntefli bæði gegn Serbum og Austurríki en Snorri hefur ekki áhyggjur að vonbrigði þeirra leikja hafi slæm áhrif á leikmenn í kvöld. „Ef við myndum falla í þá gryfju að velta okkur upp úr öllu því neikvæða værum við búnir að dæma okkur úr leik fyrirfram. Ég held að við eigum að koma dýrvitlausir til leiks og gefa allt sem við eigum. Við sjáum svo hvað það skilar okkur.“ „Ég hef haft góða tilfinningu fyrir báðum okkar leikjum til þessa og hef líka góða tilfinningu fyrir leiknum gegn Dönum. Ef við þéttum varnarleikinn og höldum uppteknum hætti í sókninni þá held ég að við vinnum Dani.“
Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Íslenski boltinn Hljóp á hraðasta tíma ársins Sport Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira