Aron: Við förum í undanúrslit Henry Birgir Gunnarsson skrifar 23. janúar 2010 21:10 Aron Kristjánsson, EM-sérfræðingur Vísis.
Aron Kristjánsson, EM-sérfræðingur Vísis, var rétt eins og þjóðin í sjöunda himni með strákana okkar þegar Vísir heyrði í honum eftir leik. Hann spáir því að liðið sé nú komið almennilega í gang. „Ég sagði það fyrir leikinn að það lið sem myndi vinna þennan leik færi í undanúrslit. Ég stend við það og spái því að við förum í undanúrslit," segir Aron. „Þetta var frábær leikur og ég held að það hafi fyrst og fremst verið andlegt ástand leikmanna sem gerði þetta kleift. Strákarnir sýndu mikinn andlegan styrk. Menn voru dýrslegir eins og ég hafði verið að óska eftir. Ingimundur og Sverre alveg frábærir í vörninni og allt liðið að vinna vel hver fyrir annan. „Bjöggi svo frábær í markinu og strákarnir slökktu þess utan bæði í Mikkel Hansen og Lars Christiansen. Það gerir ekki hvaða lið sem er. Það voru svo margir að skila sínu í sókninni og frábær innkoman hjá Aroni. Danir urðu að endurskipuleggja svolítið vörnina þegar hann kemur inn með sína skotógn. „Róbert og Arnór magnaðir og svo eru hornamennirnir okkar í heimsklassa. Góðir í hornunum og geta svo báðir skotið fyrir utan. Það er einstakt að eiga slíka hornamenn. Óli lét sér eitt mark nægja en hann er klókur spilari, spilaði sína menn uppi, tímasetti sendingar vel og vissi vel hvort hann átti að skjóta eða ekki," segir Aron en hvernig líst honum á andstæðingana í milliriðlinum? „Mjög vel. Króatar hafa ekki verið svona veikir lengi og sakna Lackovic augljóslega mikið. Það sést vel á því að þeir hafa verið í vandræðum í öllum sínum leikjum. Við erum svo skrefi framar en bæði Norðmenn og Rússar og eigum því að klára þá leiki."
Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Íslenski boltinn Hljóp á hraðasta tíma ársins Sport Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira