Kasper Hvidt: Erum í góðri stöðu Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Linz skrifar 23. janúar 2010 14:30
Kasper Hvidt segir að minni pressa sé á danska landsliðinu fyrir leikinn gegn Íslandi í kvöld en í hinum leikjum liðsins í riðlinum. Danir hafa unnið báða leiki sína til þessa og eru öruggir inn í milliriðlakeppnina með tvö stig. „Við komum hingað til að ná tveimur stigum fyrir milliriðlakeppnina og nú höfum við náð því markmiði,“ sagði Hvidt í samtali við Vísí í gær. „Vonandi verðum við því afslappaðir í leiknum og spilum vel.“ Danir geta þó með sigri farið með fullt hús stiga í milliriðlakeppnina og það vilja Danir auðvitað gera. „Það væri auðvitað frábært að fara í milliriðlakeppnina með fjögur stig. En fyrir tveimur árum þegar við urðum Evrópumeistarar fórum við aðeins með tvö stig í milliriðlakeppnina. Samt komumst við í undanúrslitin.“ „Við vitum að Ísland er með frábært lið og á síðustu árum hafa leikir okkar við Ísland verið mjög spennandi. Þetta verður því erfiður og mjög jafn leikur sem mun ekki ráðast fyrir en á lokamínútunum.“ Vonbrigði íslensku leikmannanna eftir jafnteflið við Austurríki á fimmtudagskvöld voru mikil enda missti Ísland niður þriggja marka forskot á síðustu 50 sekúndum leiksins. „Við sáum ekki lokamínútur leiksins þar sem við vorum að hita upp annars staðar. Við heyrðum þó í kallkerfinu að Ísland væri þremur mörkum yfir og lítið eftir. Svo komum við inn í sal þegar leikurinn var búinn og það var jafnt. Við ætluðum ekki að trúa því.“ „En þetta var gríðarlega mikil óheppni og svona lagað á ekki að geta gerst.“ „Þetta ætti þó ekki að skipta neinu máli fyrir Ísland,“ sagði Hvidt. „Ef Serbía vinnur Austurríki þá mun þetta engu máli skipta.“
Mest lesið Þóra grætur í koddann ef Þorsteinn verður áfram með liðið Fótbolti Segir dóttur sína hafa gert mistök með því að velja íslenska landsliðið Fótbolti Mátti ekki kaupa íbúð Babe Ruth Sport „Þetta snýst ekki bara um Sveindísi og Karólínu“ Fótbolti Sjáðu þáttinn um N1 mótið: Sprungnar vindsængur, lukkuljón og Ronaldo hárgreiðsla Fótbolti Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Hneig niður tvisvar á risamóti í golfi Golf Viðurkenndi sök og má ekki keppa í CrossFit í fjögur ár Sport Dagskráin í dag: Golf og aftur golf Sport Fleiri fréttir Giorgi Dikhaminjia aftur til Íslands Þorsteinn Gauti semur við Sandefjord Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Skoraði yfir sex hundruð mörk á tímabilinu Karlkyns leikmenn félagsins fá líka fæðingarorlof Ráku glænýjan leikmann félagsins fyrir að mæta á tónleika Aron ráðinn til FH Vilja dæma handboltamann í fimm ára bann Hafnaði ágengum Egyptum en er til í að taka við félagsliði Tæplega þriggja áratuga ferli Alexanders lokið Færeyingar unnu bronsið á HM U21 í handbolta Senda konurnar í Evrópukeppni en ekki karlana Aðeins Færeyingurinn öflugi hefur búið til fleiri mörk á HM en Elmar Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Norðmenn græddu á því að halda HM í handbolta Kraftaverk Færeyinga: „Þurfum alla leikmenn sem við getum fengið“ Barðist fyrir Viggó við erfiðar aðstæður: „Ég vildi þetta ekki“ Rúnar framlengir og fer í nýtt hlutverk hjá Fram Íslendingar völtuðu yfir Mexíkó á HM Allir hræðist Gísla Þorgeir: „Þekktasta nafnið í handboltaheiminum“ Viktor Gísli kláraði háskólanám með atvinnumennskunni Ein af hetjum Frakka í Laugardalshöllinni látin Færeyingar efstir þrátt fyrir sigur Íslands í síðasta leik Sautján mörk Elmars ekki nóg gegn Færeyjum Gísli þakklátur fjölskyldu sinni: „Minn stærsti mentor í handboltanum og lífinu“ Átti erfitt með að grípa bolta skömmu fyrir sögulega frammistöðu Strákarnir hófu HM á tapi gegn Rúmenum Tárin runnu þegar feðgarnir föðmuðust eftir afrek Gísla í Meistaradeildinni Sjá meira