Guðmundur: Með mínum stærstu sigrum Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Linz skrifar 23. janúar 2010 21:52 Guðmundur fagnar hér gríðarlega í kvöld. Mynd/DIENER/Leena Manhart
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari sagði sigurinn á Danmörku í kvöld vera einn þann stærsta á sínum ferli með landsliðinu. Ísland vann glæsilegan sigur á Danmörku, 27-22, í lokaumferð riðlakeppninnar á EM í Austurríki og vann þar með sigur í riðlinum. Ísland fer nú með þrjú stig í milliriðlakeppnina, Danmörk tvö og Austurríki eitt. Serbar sitja eftir. „Þetta er með þeim allra stærstu sigrum sem ég hef unnið á mínum ferli," sagði Guðmundur við Vísi eftir leikinn. „Það var ansi margt sem gekk á hjá okkur í þessari viku og hún var virkilega erfið. Það reyndi mikið á sérstaklega leikmenn og þjálfara sem og alla aðra í kringum liðið," bætti hann við. „Það var mjög sérstök tilfinning að fara svona illa að ráði okkar eins og við gerðum." Ísland gerði jafntefli við Serbíu og Austurríki í fyrstu tveimur leikjum sínum og kastaði frá sér sigrinum í báðum leikjunum. Guðmundur ákvað til að mynda eftir leikinn gegn Austurríki að dvelja ekki lengur við hann en nauðsyn krafðist. „Ég tel að við gerðum rétt með því að ræða það ekki frekar." Íslenska vörnin var ótrúleg í dag og sést það best á því að ef frá er tekinn rúmur átta mínútna kafli snemma í leiknum þar sem Danir skoruðu átta mörk í röð skoruðu Evrópumeistararnir ekki nema fjórtán mörk á hinum 52 mínútunum. „Þessi varnarleikur bjó í liðinu og við vorum að bíða eftir því að hann myndi smella saman. Leikmenn eiga sannarlega hrós skilið." „Ég er einnig sáttur með hvað leikáætlunin okkar gekk vel. Við fórum afar markvisst í allar þeirra sóknaraðgerðir og brutum þá á bak aftur. Þeir áttu bara ekki „breik" í okkur í síðari hálfleik." „Ég var líka sáttur við sóknarleikinn. Aron kom mjög sterkur inn og ég er eftir á að hyggja afar ánægður með þá ákvörðun að hafa ekki notað hann fyrr en nú. Hann hefur verið að jafna sig á hnjámeiðslum og er núna tilbúinn. Hann hefur líka verið að fá meiri tíma á æfingum og það var kominn rétti tíminn til að setja hann í alvöru leik." „Með því fengum við aukna breidd í liðið og nú vinnum við áfram í því fyrir átökin í milliriðlakeppninni."
Mest lesið Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Fleiri fréttir Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Sjá meira