Árósaleiðina í atvinnumálum 26. maí 2010 06:00 Atvinnumálin eru aðalmál fyrir borgir sem glíma við kreppu. Reykjavík þarf nú að grípa til meðalsins sem virkaði í Árósum, flýta verklegum framkvæmdum og fjárfesta í viðhaldsverkefnum, skólum og endurnýjun eldri hverfa. Einhenda sér í að skapa vöxt. Leggja áherslu á nýsköpun, græna uppbyggingu og að skapa störf strax frekar en að bíða eftir því að eitthvað gerist. Borgir eru og eiga að vera afl til vaxtar og breytinga í samfélögum. Í Árósum hefur náðst góður árangur. Borg þar sem venjulega er atvinnuleysi yfir meðaltali í Danmörku, er nú 3,6 prósent atvinnuleysi, miklu minna en við er að glíma í Reykjavík þar sem 7.000 eru atvinnulausir eða 11 prósent vinnuafls og mörg störf í hættu ef ekkert verður að gert. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík. Í Árósum sýndu jafnaðarmenn hvernig hægt er að komast út úr erfiðu efnahagsástandi með markvissum aðgerðum. Það er hagkvæmt að skapa störfin nú frekar en að bíða. Aðferð Árósa gekk út á að velja þær greinar sem líklegastar væru til vaxtar og styðja þær. Í Reykjavík sjáum við mörg tækifæri í ferðaþjónustu, upplýsingatækni, kvikmyndagerð, sprotafyrirtækjum og viðhaldsverkefnum þar sem hægt verður að koma vinnufúsum til starfa við iðnað og verkamannastörf. Borgaryfirvöld Árósa löðuðu til borgarinnar stærsta vindmylluframleiðanda heims sem ákvað að gera borgina að sínum höfuðstöðvum. Ef við tökumst ekki á við atvinnuleysið, bitnar það á skólunum, frístundastarfinu og öryggi fólksins í borginni. Hvert prósent í atvinnuleysi kostar milljarð sem borgaryfirvöld verða þá að finna annars staðar. Hér þarf að vinna með höfuðborgarsvæðið allt, starfa náið með atvinnulífinu og verkalýðsfélögum og ná samstöðu um vaxtaráætlun í samfélaginu. Ekkert annað dugar við erfiðar aðstæður en aðferðir jafnaðarmanna. Við sáum það í kreppunni miklu í Bandaríkjunum að Repúblikanar vildu bíða og sjá, það væri ekki hlutverk hins opinbera að örva atvinnulífið. Hættan er sú að þetta verði ofaná í Reykjavík því Samfylkingin er eini flokkurinn sem hefur lagt fram áætlun í atvinnumálum. Aðferð frjálshyggjunnar að gera ekkert, bíða og bíða og vona að markaðurinn leysi vandann, hefur ekki dugað til. Við þurfum breytingar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Atvinnumálin eru aðalmál fyrir borgir sem glíma við kreppu. Reykjavík þarf nú að grípa til meðalsins sem virkaði í Árósum, flýta verklegum framkvæmdum og fjárfesta í viðhaldsverkefnum, skólum og endurnýjun eldri hverfa. Einhenda sér í að skapa vöxt. Leggja áherslu á nýsköpun, græna uppbyggingu og að skapa störf strax frekar en að bíða eftir því að eitthvað gerist. Borgir eru og eiga að vera afl til vaxtar og breytinga í samfélögum. Í Árósum hefur náðst góður árangur. Borg þar sem venjulega er atvinnuleysi yfir meðaltali í Danmörku, er nú 3,6 prósent atvinnuleysi, miklu minna en við er að glíma í Reykjavík þar sem 7.000 eru atvinnulausir eða 11 prósent vinnuafls og mörg störf í hættu ef ekkert verður að gert. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík. Í Árósum sýndu jafnaðarmenn hvernig hægt er að komast út úr erfiðu efnahagsástandi með markvissum aðgerðum. Það er hagkvæmt að skapa störfin nú frekar en að bíða. Aðferð Árósa gekk út á að velja þær greinar sem líklegastar væru til vaxtar og styðja þær. Í Reykjavík sjáum við mörg tækifæri í ferðaþjónustu, upplýsingatækni, kvikmyndagerð, sprotafyrirtækjum og viðhaldsverkefnum þar sem hægt verður að koma vinnufúsum til starfa við iðnað og verkamannastörf. Borgaryfirvöld Árósa löðuðu til borgarinnar stærsta vindmylluframleiðanda heims sem ákvað að gera borgina að sínum höfuðstöðvum. Ef við tökumst ekki á við atvinnuleysið, bitnar það á skólunum, frístundastarfinu og öryggi fólksins í borginni. Hvert prósent í atvinnuleysi kostar milljarð sem borgaryfirvöld verða þá að finna annars staðar. Hér þarf að vinna með höfuðborgarsvæðið allt, starfa náið með atvinnulífinu og verkalýðsfélögum og ná samstöðu um vaxtaráætlun í samfélaginu. Ekkert annað dugar við erfiðar aðstæður en aðferðir jafnaðarmanna. Við sáum það í kreppunni miklu í Bandaríkjunum að Repúblikanar vildu bíða og sjá, það væri ekki hlutverk hins opinbera að örva atvinnulífið. Hættan er sú að þetta verði ofaná í Reykjavík því Samfylkingin er eini flokkurinn sem hefur lagt fram áætlun í atvinnumálum. Aðferð frjálshyggjunnar að gera ekkert, bíða og bíða og vona að markaðurinn leysi vandann, hefur ekki dugað til. Við þurfum breytingar í Reykjavík.
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar