Skoðun

Árósaleiðina í atvinnumálum

Atvinnumálin eru aðalmál fyrir borgir sem glíma við kreppu. Reykjavík þarf nú að grípa til meðalsins sem virkaði í Árósum, flýta verklegum framkvæmdum og fjárfesta í viðhaldsverkefnum, skólum og endurnýjun eldri hverfa. Einhenda sér í að skapa vöxt. Leggja áherslu á nýsköpun, græna uppbyggingu og að skapa störf strax frekar en að bíða eftir því að eitthvað gerist.

Borgir eru og eiga að vera afl til vaxtar og breytinga í samfélögum. Í Árósum hefur náðst góður árangur. Borg þar sem venjulega er atvinnuleysi yfir meðaltali í Danmörku, er nú 3,6 prósent atvinnuleysi, miklu minna en við er að glíma í Reykjavík þar sem 7.000 eru atvinnulausir eða 11 prósent vinnuafls og mörg störf í hættu ef ekkert verður að gert.

Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík.

Í Árósum sýndu jafnaðarmenn hvernig hægt er að komast út úr erfiðu efnahagsástandi með markvissum aðgerðum. Það er hagkvæmt að skapa störfin nú frekar en að bíða.

Aðferð Árósa gekk út á að velja þær greinar sem líklegastar væru til vaxtar og styðja þær. Í Reykjavík sjáum við mörg tækifæri í ferðaþjónustu, upplýsingatækni, kvikmyndagerð, sprotafyrirtækjum og viðhaldsverkefnum þar sem hægt verður að koma vinnufúsum til starfa við iðnað og verkamannastörf.

Borgaryfirvöld Árósa löðuðu til borgarinnar stærsta vindmylluframleiðanda heims sem ákvað að gera borgina að sínum höfuðstöðvum.

Ef við tökumst ekki á við atvinnuleysið, bitnar það á skólunum, frístundastarfinu og öryggi fólksins í borginni. Hvert prósent í atvinnuleysi kostar milljarð sem borgaryfirvöld verða þá að finna annars staðar. Hér þarf að vinna með höfuðborgarsvæðið allt, starfa náið með atvinnulífinu og verkalýðsfélögum og ná samstöðu um vaxtaráætlun í samfélaginu.

Ekkert annað dugar við erfiðar aðstæður en aðferðir jafnaðarmanna. Við sáum það í kreppunni miklu í Bandaríkjunum að Repúblikanar vildu bíða og sjá, það væri ekki hlutverk hins opinbera að örva atvinnulífið. Hættan er sú að þetta verði ofaná í Reykjavík því Samfylkingin er eini flokkurinn sem hefur lagt fram áætlun í atvinnumálum. Aðferð frjálshyggjunnar að gera ekkert, bíða og bíða og vona að markaðurinn leysi vandann, hefur ekki dugað til. Við þurfum breytingar í Reykjavík.






Skoðun

Skoðun

Afruglari

Þórður Björn Sigurðsson skrifar

Sjá meira


×