Snorri Steinn: Stemningin eins og í Þýskalandi Hjalti Þór Hreinsson skrifar 6. september 2010 06:45 Fréttablaðið
Danska ofurfélagið AG Köbenhavn, með þá Snorra Stein Guðjónsson og fyrirliðann Arnór Atlason innanborðs, fór vel af stað í dönsku úrvalsdeildinni um helgina. Það lagði ríkjandi meistara í AaB 29-25 þar sem Arnór skoraði eitt mark en Snorri var á meðal bestu manna vallarins. Hann skoraði sjö mörk. Félaginu hefur verið líkt við Galactico-stefnu Real Madrid, að kaupa alla þá bestu sama hvað þeir kosta. Pressan á liðinu er mikil en á meðal þeirra sem liðið fékk í sumar voru Kasper Hvidt, Joachim Boldsen og Mikkel Hansen. Um 6200 áhorfendur mættu á leikinn og Snorri segir að stemningin hafi verið eins og í þýsku úrvalsdeildinni. „Það var klikkuð stemning í höllinni. Það sem Jesper Nielsen er að gera með félagið er einsdæmi og hann er að ná umgjörðinni í nýjar hæðir. Stemningin var bara eins og í þýsku úrvalsdeildinni," segir Snorri en liðið vekur gríðarlega athygli í Kaupmannahöfn, og víðar. „Við erum gríðarlega mikið í fjölmiðlum. Við Arnór sleppum reyndar mikið við það, fjölmiðlarnir vilja tala við dönsku stjörnurnar frekar. En við þurfum að vera í fjölmiðlunum, það fylgir þessu og félagið vill fá alla athygli sem það getur. Þetta er markviss vinna hjá klúbbnum að sækja í blöðin." Pressan á liðinu er líka mikil, með allar stórstjörnurnar og peningana sem hafa farið í félagið. „Ég vissi af henni þegar ég kom. Það er eðlilegt miðað við hvernig liðið er á pappírunum og markmiðin sem félagið gefur út. Það var mikilvægt að byrja mótið vel og það gekk upp. Við erum með gríðarlega sterkt lið og það var gott að vinna einn af okkar helstu keppinautum um titilinn," segir Snorri sem er búinn að koma sér vel fyrir í Kaupmannahöfn. „Okkur líður mjög vel hérna. Við búum rétt hjá Arnóri og ég er bara rosalega ánægður. Kaupmannahöfn er frábær borg og mér líður bara hrikalega vel," segir landsliðsmaðurinn Snorri Steinn Guðjónsson.
Handbolti Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Hættir með landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira