Logi: Nagaði neglurnar á bekknum Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Linz skrifar 20. janúar 2010 20:15 Logi og Óskar Bjarni fá sér kaffibolla á hóteli liðsins í dag. Mynd/E. Stefán
Logi Geirsson segir að það hafi verið erfitt fyrir sig að sitja og horfa upp á liðsfélaga sína í íslenska landsliðinu kasta frá sér sigrinum á lokamínútum leiksins gegn Serbíu í gær. „Ég hef sjaldan verið jafn upptjúnaður á bekknum. Venjulega er ég mjög rólegur þegar ég sit þar. En í gær var ég byrjaður að naga neglurnar í fyrsta skipti á ævinni,“ sagði Logi við Vísi í dag. „Þetta var mikill spennuleikur enda var spennan búin að safnast upp í heilt ár. Það er því ekki óalgengt að svona lagað geti gerst í fyrsta leik.“ „En við erum núna búnir að fara yfir leikinn í gær og það er komin gleði í mannskapinn á ný.“ Logi sagði þó að leikmenn hefðu verið afar ósáttir þegar þeir komu upp á hótel eftir leikinn í gær. „Helst vildu menn fara aftur í stuttbuxurnar og spila gegn Austurríki strax. Menn voru brjálaðir.“ Hann fagnar því þó að liðið fái frídag í dag og að það verði einnig frídagur fyrir síðasta leik riðilsins, gegn Dönum á laugardaginn. „Við erum lið sem leggur mikla áherslu á undirbúninginn. Þessi tími skiptir einnig miklu máli ef menn eru í meðferð hjá sjúkraþjálfara.“ „En ég er klár í slaginn þó svo að ég hafi ekkert spilað í gær. Ég verð líka betri með hverjum degi og hverri æfingu. Gummi [Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari] gerði mér grein fyrir því að ég muni spila minna hlutverk með liðinu en oft áður enda búinn að vera lengi frá vegna meiðsla. Við eigum líka nóg af leikmönnum sem geta leyst allar stöður inn á vellinum og ég er bara hluti af þeirri held," sagði Logi og bætti við að endingu. „Ég nýti bara þau tækifæri sem ég fæ og tek Stockton á þetta.“
Mest lesið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Íslenski boltinn Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Körfubolti Milner aftur til Liverpool Enski boltinn Fékk símtal frá Þorsteini í þetta sinn en er óviss um landsliðið Fótbolti Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið Fótbolti „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Enski boltinn Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Enski boltinn Dagskráin: Stórleikur á Englandi og bikarmeistarar í dalnum Sport Fleiri fréttir Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Sjá meira