Jurtaolía gæti skapað fjölda starfa víða um land 12. nóvember 2010 19:01
Fjöldi starfa gæti skapast í öllum landshlutum við að framleiða jurtaolíu á farartæki. Framtíðardraumur þeirra sem standa að tilraunaverkefni er að Íslendingar framleiði sjálfir alla sína olíu. Við urðum vitni að því á Stöð 2 í gær þegar bóndinn á Þorvaldseyri pressaði olíu úr repjufræjum, hellti á tankinn og ók síðan í fyrsta sinn traktor sem knúinn var eldsneyti af eigin akri. Tilraunaverkefnið hófst fyrir tveimur árum þegar repju var sáð á níu stöðum á landinu, en þessi jurt er afbrigði af rófu. Jónatan Hermannsson, tilraunastjóri Landbúnaðarháskóla Íslands að Keldnaholti, segir að af þessum níu stöðum megi segja að ræktunin hafi ekki lifað veturinn á fimm stöðum. Á fjórum stöðum lifði hún vel og þar reyndist uppskeran góð. Jónatan leggur áherslu á að menn fari hægt af stað og fikri sig áfram. Ræktunin hafi gengið í öllum landshlutum en einnig mistekist í öllum landshlutum. Það sé, eins og er, ekki hægt að setja sérstök mörk. Hann reikni þó með að rækta megi repjuna bæði norðanlands og sunnan. Jurtaolíunni sem fór á traktorinn var blandað saman við hefðbundna dísilolíu. Siglingastofnun, sem leiðir verkefnið, á hins vegar tækjabúnað til að vinna úr henni bíódísil og næsta skref er að prófa olíuna á smábát. Langtímamarkmiðið er stórfelld ræktun og framleiðsla, og jafnvel svo mikil að fullnægi þörfum þjóðarinnar. Jón Bernódusson, verkfræðingur hjá Siglingastofnun, segir að Íslendingar eigi mikið af landi sem nota megi til að rækta repju. Þá skapist störf við að framleiða olíu. Þetta spari gjaldeyri og Íslendingar geti þá orðið sjálfum sér nægir um eigin olíu. Þetta sé lífræn olía og hún mengi auk þess ekki jafn mikið og jarðefnadísill. Ólafur Eggertsson bóndi segir að afla verði mikillar þekkingar áður en farið verði út í stórræktun. Íslendingar séu hins vegar með nóg af frábæru ræktunarlandi og möguleikarnir séu vissulega fyrir hendi, ef menn standi rétt að málum.
Mest lesið Eldgos hafið Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum Innlent Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Innlent „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ Innlent „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Innlent Fleiri fréttir Eldgos hafið Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Sjá meira