Skoðun

Ólafur Darri Andrason: Afneitun leysir engan vanda

Ólafur Darri Andrason skrifar
Ögmundur Jónasson alþingismaður kallar eftir rökum okkar sem teljum að töf á lausn Icesave-deilunnar hamli endurreisn efnahagslífsins, í grein í Fréttablaðinu á miðvikudaginn. Það er fagnaðarefni að þingmaðurinn skuli leita eftir rökstuddri umræðu um þetta erfiða mál. Hitt er öllu dapurlegra að hann leggur lítið inn í slíka umræðu. Í stað þess að fjalla um málið af yfirvegun og með rökum gerir hann lítið úr málflutningi okkar sem erum honum ósammála og fer rangt með þegar hann vitnar í útreikninga hagdeildar ASÍ.

En hver eru rök okkar sem teljum mikilvægt að ljúka Icesave-málinu án frekari tafa? Rökin eru fyrst og fremst þau að sterk tengsl séu á milli Icesave-málsins og endurreisnar efnahagslífsins.

Tengsl Icesave og endurreisnarinnarLánshæfismat okkar hjá stórum erlendum matsfyrirtækjum hefur versnað vegna Icesave. Töf hefur orðið á endurskoðun á efnahagsáætlun okkar og AGS og Norðurlöndin hafa ekki treyst sér til að veita okkur lán á meðan málið er óleyst. Við þessar aðstæður er illmögulegt fyrir ríkið og orkufyrirtækin að leita eftir lánum á erlendum lánamörkuðum. Til skamms tíma þýðir þetta tvennt; endurfjármögnun á stórum afborgunum af erlendum lánum opinberra aðila eru í mikilli óvissu og ómögulegt verður að fjármagna þau orkuver sem þarf vegna fyrirhugaðra stóriðjuframkvæmda.

Takist okkur ekki að fá aðgang að erlendum lánamörkuðum þá klárast gjaldeyrisvaraforðinn á næstu tveimur árum. Ekkert verður af fyrirhuguðum stóriðjuframkvæmdum og þar með hverfur sá hagvöxtur sem þær framkvæmdir áttu að skila. Að mati hagdeildar ASÍ verður þjóðfélagið af 133 milljarða verðmætum á næstu þremur árum verði ekkert af framkvæmdunum. Við þetta bætist að óvissan varðandi gjaldeyrisvaraforðann leiðir til þess að krónan verður veikari en ella sem þýðir að erfiðara verður að slaka á gjaldeyrishöftunum og lækka vexti. Ríkið verður af tekjum vegna minni umsvifa í hagkerfinu og útgjöld þess aukast vegna atvinnuleysis. Hvorttveggja kallar á enn meiri niðurskurð á fjárlögum en þegar hefur verið boðaður.

Leysir Icesave allan vanda?Er öruggt að öll okkar vandamál leysist ef við bara klárum málið? Svarið er því miður nei. Það eru fleiri ljón í vegi stórframkvæmda en fjármögnun. Það er heldur ekki hægt að fullyrða að erlendir lánamarkaðir opnist um leið og við leysum Icesave-málið en það er nokkuð öruggt að á meðan málið er í uppnámi þá verður torsótt að sækja þangað lán.




Skoðun

Skoðun

Afruglari

Þórður Björn Sigurðsson skrifar

Sjá meira


×