Súludansmeyjar segja ný lög vega að atvinnuöryggi þeirra 26. mars 2010 19:19
Tvær íslenskar súludansmeyjar á Goldfinger óttast að ný lög sem banni nektardans vegi að atvinnuöryggi þeirra. Þær fóru að dansa eftir að hafa misst vinnuna og segjast afar ánægðar með starfið. Íslenskum súludansmeyjum mun hafa fjölgað mjög eftir bankahrun. Alþingi samþykkti lög á þriðjudag sem bannar nektardans og öðlast lögin gildi í byrjun júlí. Í áliti allsherjarnefndar sem fjallaði um málið segir að í ljósi upplýsinga frá lögreglu séu verulegar líkur séu á því að á nektardansstöðum starfi fólk sem sé mögulega fórnarlömb mansals eða annars konar misneytingar. Þessu hafna tvær íslenskar konur sem fengist hafa við dans á Goldfinger síðan eftir bankahrun. Konurnar segja fordóma helst birtast í fullyrðingum um að nektardansarar hljóti stunda vændi og vera í vímuefnaneyslu. Þær segja það alls ekki sína reynslu af starfinu. Mjög auðvelt sé að finna sér vændiskarl eða -konu á Íslandi en slík starfsemi sé ekki stunduð á Goldfinger. Þær óttast um framtíð sína verði staðnum lokað. Á fundi sem haldinn var í síðustu viku í Háskólanum í Reykjavík undir yfirskriftinni Er mansal og vændi vandamál á Íslandi, sagði Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu þetta: „Við höfum enga ástæðu til þess að ætla það sé eitthvað öðruvísi hér á landi heldur en annars staðar í Evrópu þar sem að fyrir liggur í mjög mörgum tilfellum eru skýr tengsl á milli nektardansstaða og skipulagðrar brotastarfsemi og mansals."
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Sjá meira