Frægri Benz-bifreið stolið 6. nóvember 2010 08:00 Benz-bifreið kvikmyndagerðarmannsins Heimis Sverrissonar var stolið fyrir utan heimili hans á miðvikudaginn.fréttablaðið/gva
Bíl kvikmyndagerðarmannsins Heimis Sverrissonar var stolið fyrir utan heimili hans á Njálsgötu á miðvikudaginn var. Bíllinn er grænn Benz af árgerðinni 1979 og því um antíkgrip að ræða. „Ég var nýkominn heim eftir tökur og lagði bílnum fyrir utan húsið. Tveimur klukkustundum síðar var hann horfinn. Vitni sagðist hafa séð tvo menn í mjög annarlegu ástandi brjótast inn í bílinn og keyra niður Njálsgötuna og beint í flasið á tökuliði kvikmyndarinnar Gauragangs. Þeir keyrðu beint aftan á einn trukkinn sem tökuliðið var með og héldu svo glæfraakstrinum áfram. Sem betur fer slasaðist enginn," segir Heimir. Hann eignaðist bílinn fyrr í sumar og hefur síðan þá eytt miklum tíma í að gera bílinn upp og því er þetta fyrst og fremst mikið tilfinningalegt tjón fyrir Heimi. „Við notuðum bílinn við tökur á myndinni Djúpinu í sumar og ég keypti hann í kjölfarið af Þorsteini Bachmann leikara. Þetta er rosalegur kaggi og í góðu ástandi þannig að ég vil gjarnan fá hann aftur. Hann er það sérstakur að það ætti ekki að vera hægt að rúnta um bæinn á honum án þess að eftir honum verði tekið," segir Heimir, sem biður fólk um að hafa augun opin og gera lögreglu viðvart sjái það bílinn einhvers staðar á ferð. „Ég veit að hann er klesstur að framan núna eftir áreksturinn við tökulið Gauragangs, annars vona ég að hann sé nokkurn veginn í heilu lagi," segir hann að lokum.- sm
Mest lesið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Lífið samstarf Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Fjarstætt að hugsa til þess að þetta myndi enda svona Lífið samstarf Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Lífið Fleiri fréttir Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Sjá meira