Skoðun

Hver er einn í heiminum?

Bergþóra Snæbjörnsdóttir skrifar

Bergþóra Snæbjörnsdóttir skrifar um baráttumál stúdenta

Á sama tíma og íslenskir stúdentar naga blýanta eftir verðskuldað jólafrí, hírist hinn tuttugu og fjögurra ára gamli Majid Tavakoli í fangelsi einhvers staðar í Íran. Það veit enginn hvar Majid er haldið. Hið eina sem er talið fullvíst er að síðan hann var fangelsaður fyrir rúmum mánuði síðan, hefur hann þurft að þola yfirheyrslur, barsmíðar og pyntingar sem fæst okkar geta gert sér í hugarlund. Um hvað hefur Majid gerst sekur? Jú - Majid er stúdent sem hélt ræðu á friðsamlegum mótmælum háskólanema 7. desember síðastliðinn. Og hann er ekki einn. Á síðustu vikum hafa yfir 80 háskólanemar verið handteknir í Íran. En það er ekki bara í Íran sem stúdentar hafa þurft að þola ofbeldi og kúgun en sem dæmi má nefna að í ágúst síðastliðnum var fjórum stúdentum varpað í fangelsi í Simbabve fyrir að ávarpa samnemendur sína og í Hvíta-Rússlandi eru hörð viðurlög við því að taka þátt í réttindabaráttu stúdenta.

Málfrelsi er ekki sjálfsagt, mannréttindi eru ekki sjálfsögð, rétturinn til náms er ekki sjálfsagður. Það eru alltaf einhverjir sem hafa barist fyrir þeim réttindum sem við teljum sjálfsögð í dag.

Stúdentar hafa ætíð verið í fararbroddi þjóðfélagslegra breytinga og eru fjölmörg dæmi úr mannkynssögunni því til stuðnings. Eftir þægindi undanfarinna ára er svo komið að nú eru einstakar aðstæður í íslensku samfélagi, sem og heiminum öllum. Aðstæður sem við getum ekki hundsað.

Röskva hefur ætíð haldið því á lofti að málefni sem snerta stúdenta takmarkist ekki við veggi skólans. Við erum öll stúdentar og við erum öll samfélagsþegnar. Nú, sem aldrei fyrr, þurfa stúdentar að standa saman. Stúdentaráð getur ekki lengur skorast undan þeirri ábyrgð sem fylgir því að vera stærsti málsvari stúdenta á Íslandi. Ef Stúdentaráð stendur ekki grimmilega vörðinn á öllum vígstöðvum er það máttlaust - þegar kemur að litlum málum sem stórum.

Alvöru réttindabarátta krefst þess að sjá heildarmyndina. Fyrri kynslóðir börðust fyrir okkar hönd, nú er það ábyrgð okkar allra að halda þeirri baráttu lifandi. Stúdentapólitík snýst ekki bara um bílastæði og innstungur, heldur heiðarleika, jafnrétti og virðingu. Við erum öll Majid.

Höfundur er oddviti Röskvu.




Skoðun

Skoðun

Vegið að ís­lenska líf­eyris­kerfinu

Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar

Skoðun

Takk Trump!

Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Sjá meira


×