Háskólarannsóknir á krepputímum: Raun- og heilbrigðisvísindi 4. nóvember 2010 06:00 Eiríkur Steingrímsson og Magnús Karl Magnússon, prófessorar við læknadeild Háskóla Íslands, skrifa: Rannsóknatengd nýsköpun er sú gerð nýsköpunar sem leiðir til mests virðisauka. Oftast á sú nýsköpun uppruna í grunnrannsóknum á sviði verkfræði og raun- og heilbrigðisvísinda. Staða þessara vísinda á Íslandi hefur hins vegar versnað að mun í kjölfar kreppunnar. Vísindarannsóknir á sviði raun- og heilbrigðisvísinda eru öflugustu rannsóknir sem stundaðar eru á Íslandi. Þetta hefur komið fram í öllum úttektum sem gerðar hafa verið á stöðu vísindarannsókna á Íslandi, nú síðast í skýrslu Rannís um ritrýndar birtingar og áhrif þeirra. Þrátt fyrir þetta er staða þessara fræðasviða veik í alþjóðlegum samanburði enda samkeppnissjóðir á Íslandi veikir. Helsti samkeppnissjóðurinn sem styrkir vísindarannsóknir er Rannsóknasjóður. Árið 2009 hafði hann samtals 314 milljónir til úthlutunar í ný verkefni. Meðalupphæð styrkja var 6,1 milljón. Þessi upphæð dugar vart fyrir launum og rekstrarkostnaði eins rannsóknarnema í eitt ár. Rannsóknastofa með einum nemenda er hins vegar örrannsóknastofa og langt frá sambærilegum rannsóknastofum í nágrannalöndunum þar sem stofur með 5-10 nemendum eru algengar. Sá árangur sem hefur náðst í vísindarannsóknum á sviði raun- og heilbrigðisvísinda er einkum því að þakka að erlendir samstarfsaðilar einstakra vísindamanna greiða oft brúsann. Það er hins vegar ekki hægt að reiða sig á slíkt til langframa og raunar má leiða líkur að því að niðurskurður á innlendu rannsóknarfé veiki samkeppnisstöðu íslenskra vísindamanna á erlendum vettvangi.Magnús Karl Magnússon prófessor.Árangurshlutfall íslenskra vísindamanna í erlendum samkeppnissjóðum, s.s. 7. Rammaáætlun, hefur verið gott en minni árangur heima fyrir leiðir einungis til veikari samkeppnisstöðu erlendis. Þetta er vert að hafa í huga, ekki síst í ljósi þess að eitt af þremur meginstefjum í stefnu Vísinda- og tækniráðs 2010-2012 er einmitt að auka alþjóðlega samvinnu. Íslenska meðalstyrkinn má bera saman við sambærilega styrki á Vesturlöndum. Einfaldast er að bera hann saman við meðal-styrk í Bandaríkjunum þar sem styrkjakerfið er samræmt og gagnsætt en þar er það National Institutes of Health (NIH) sem einkum styrkir rannsóknir á sviði heilbrigðisvísinda. Flestir ef ekki allir bandarískir vísindamenn á sviði heilbrigðis- og lífvísinda reiða sig á styrki frá NIH en þeir eru mikilvægasta fjármögnunin. Meðalupphæð verkefnastyrkja frá NIH var 416 þúsund dollarar/ár (50 milljónir ísl. kr.) árið 2009. Þetta er 9 sinnum hærri upphæð en meðal-verkefnisstyrkur frá Rannsóknasjóði. Frá Evrópu má nefna nærtækt dæmi, en samstarfsaðili annars okkar hlaut nýverið styrk að upphæð 20 milljónir sænskra króna (330 milljónir ísl. kr.) til fimm ára frá Strategiska Fonderna. Augljóst er að erfitt er að keppa við vísindamenn í nágrannalöndunum með hið íslenska styrkjakerfi að vopni. Áhugaleysi stjórnvalda á rannsóknum á sviði verkfræði, raun- og heilbrigðisvísinda kemur fram á ýmsan hátt. Í fyrsta lagi má nefna áhugaleysi gagnvart Rannsóknasjóði og takmarkaðan áhuga á að breyta pólitískum vísindasjóðum (t.d. AVS sjóðnum) í alvöru vísindasjóð. Í öðru lagi má nefna að þrátt fyrir endurteknar tilraunir hefur enn ekki tekist að fá niðurfelldan virðisaukaskatt af rannsóknavörum. Í þriðja lagi hefur mennta- og menningarmálaráðherra nýlega skipað Gæðaráð háskóla sem ætlað er að tryggja gæði háskólastarfsemi á Íslandi og bæta kennslu og rannsóknir á markvissan hátt. Þetta skref er fagnaðarefni. Það er hins vegar athyglisvert að enginn þeirra erlendu sérfræðinga sem skipaðir hafa verið í ráðið hafa menntun eða reynslu á sviði tilraunavísinda (verkfræði, raun- eða heilbrigðisvísinda). Það virðist því ætlun yfirvalda að láta meta þessi vísindi, sem allir mælikvarðar segja að séu þau sterkustu á Íslandi, af einstaklingum sem ekki þekkja til þessara vísinda. Áhugaleysi stjórnvalda gagnvart málaflokknum er áhyggjuefni. Það er mikilvægt fyrir framtíð Íslands að efla rannsóknatengda nýsköpun. Fáir hefðu spáð því fyrir 20 árum að áhugaverðustu fyrirtæki Íslands árið 2010 störfuðu á sviði stoðtækja, erfðafræði, tölvuleikja eða lyfjaframleiðslu. Ef sambærileg óvænt nýsköpun á að geta orðið til í framtíðinni, er mikilvægt að stórefla samkeppnissjóði, sérstaklega á sviði raun- og heilbrigðisvísinda. Í þessum greinaflokki höfum við lagt áherslu á samfélagslegt hlutverk vísinda og nýsköpunar. Vísindi geta skapað eina af stoðum nýs samfélags. Til þess að þetta verði að veruleika verðum við að endurskoða fjármögnun og gæðamat vísindarannsókna á Íslandi. Við leggjum til að á aldarafmæli Háskóla Íslands hefjist slík endurskoðun. Í þeim tilgangi mætti skipa ráðgjafarráð alþjóðlegra vísindamanna og annarra sérfræðinga á sviði nýsköpunar. Ráðgjöf slíks hóps gæti hjálpað okkur að brjótast úr viðjum stofnanafjárveitinga og um leið leyst úr læðingi nýjan kraft innan háskólasamfélagsins. Á sama tíma þurfa stjórnvöld að gera sér grein fyrir að raunveruleg verðmætasköpun byggir á þekkingu og að slík fjárfesting er langtímafjárfesting sem leggur grunn að öflugu, frjóu og upplýstu samfélagi sem skapar eftirsóknarvert umhverfi fyrir komandi kynslóðir. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Tengdar fréttir Háskólarannsóknir á tímum kreppu og gæði þeirra Í fyrri greinum okkar ræddum við um mikilvægi vísindarannsókna fyrir efnahagslífið og þá staðreynd að innan við 15% af framlagi ríkisins fara í gegnum samkeppnissjóðina. Í hinum vestræna heimi er þetta hlutfall víðast mun hærra og er um 30-40% á hinum Norðurlöndunum. Í Bandaríkjunum koma um 85% af rannsóknafé háskóla úr samkeppnissjóðum. Það er því ljóst að Ísland sker sig verulega úr hvað þetta varðar. 13. október 2010 06:00 Háskólarannsóknir á tímum kreppu og doktorsnám á Íslandi Í fyrri greinum okkar höfum fjallað um hlutverk háskóla, fjármögnun vísindaverkefna og gæðamat. Við rannsóknarháskóla er doktorsnám grundvallareining rannsóknarstarfs háskóla. Langveigamesti þáttur slíks náms er vísindaverkefni doktorsnemans en í því felst sjálfstætt rannsóknarverkefni unnið undir handleiðslu háskólakennara. Slík vísindaverkefni eru víðast burðareining rannsóknarstarfs skólans. 29. október 2010 06:00 Mest lesið Byggjum fyrir eldra fólk, ekki ungt Ólafur Margeirsson Skoðun Stattu vörð um launin þín Davíð Aron Routley Skoðun Hlustum í eitt skipti á foreldra Jón Pétur Zimsen Skoðun Hugleiðingar um ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs Örn Sigurðsson Skoðun Okkar lágkúrulega illska Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir Skoðun Andaðu rólega elskan... Ester Hilmarsdóttir Skoðun Ég vildi óska þess að ég hefði hreinlega fengið krabbamein Íris Elfa Þorkelsdóttir Skoðun Eldri borgarar – áhrif aðildar að Evrópusambandinu (ESB) Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Ótryggt aðgengi á Veðurstofureit Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Skólaskætingur Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stattu vörð um launin þín Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Byggjum fyrir eldra fólk, ekki ungt Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Hlustum í eitt skipti á foreldra Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hugleiðingar um ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs Örn Sigurðsson skrifar Skoðun Heildstætt heilbrigðiskerfi – hagur okkar allra Alma D. Möller skrifar Skoðun Vanþekking eða vísvitandi blekkingar? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun „I believe the children are our future…“ Karen Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Mikilvægi félagasamtaka og magnað maraþon Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Allt sem ég þarf að gera Dagbjartur Kristjánsson skrifar Skoðun Eldri borgarar – áhrif aðildar að Evrópusambandinu (ESB) Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Meiri gæði og mun minni álögur - Hveragerðisleiðin í leikskólamálum Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir,Sandra Sigurðardóttir,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Halldór Benjamín Hreinsson,Njörður Sigurðsson skrifar Skoðun Reykjavíkurborg stígur fyrsta skrefið í snjallvæðingu umferðarljósa! Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Framtíðin í fyrsta sæti – mikilvægi forgangsröðunar á tillögum Kópavogsbæjar í grunnskólamálum Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Notkun ökklabanda Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Skólaskætingur Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir skrifar Skoðun Þéttingarstefnan hefur brugðist og Dóra breytir um umræðuefni Aðalsteinn Haukur Sverrisson skrifar Skoðun Ný sókn í menntamálum Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð, fálmandi mjálm eða aðgerðir? Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Vin í eyðimörkinni – almenningsbókasöfn borgarinnar Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Er Akureyri að missa háskólann sinn? Aðalbjörn Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu staðreyndir um alvarlegustu kvenréttindakrísu heims Stella Samúelsdóttir skrifar Skoðun Ég vildi óska þess að ég hefði hreinlega fengið krabbamein Íris Elfa Þorkelsdóttir skrifar Skoðun Mestu aularnir í Vetrarbrautinni Kári Helgason skrifar Skoðun Fjárfestum í fyrsta bekk, frekar en fangelsum Hjördís Eva Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftirlíking vitundar og hætturnar sem henni fylgja Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Andaðu rólega elskan... Ester Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Gagnvirkni líkama og vitundar til heilbrigðis Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Nýjar lausnir í kennslu – gamlar hindranir Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Kópavogsleiðinn Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Samstarf sem skilar raunverulegum loftslagsaðgerðum Nótt Thorberg skrifar Sjá meira
Háskólarannsóknir á tímum kreppu og gæði þeirra Í fyrri greinum okkar ræddum við um mikilvægi vísindarannsókna fyrir efnahagslífið og þá staðreynd að innan við 15% af framlagi ríkisins fara í gegnum samkeppnissjóðina. Í hinum vestræna heimi er þetta hlutfall víðast mun hærra og er um 30-40% á hinum Norðurlöndunum. Í Bandaríkjunum koma um 85% af rannsóknafé háskóla úr samkeppnissjóðum. Það er því ljóst að Ísland sker sig verulega úr hvað þetta varðar. 13. október 2010 06:00
Háskólarannsóknir á tímum kreppu og doktorsnám á Íslandi Í fyrri greinum okkar höfum fjallað um hlutverk háskóla, fjármögnun vísindaverkefna og gæðamat. Við rannsóknarháskóla er doktorsnám grundvallareining rannsóknarstarfs háskóla. Langveigamesti þáttur slíks náms er vísindaverkefni doktorsnemans en í því felst sjálfstætt rannsóknarverkefni unnið undir handleiðslu háskólakennara. Slík vísindaverkefni eru víðast burðareining rannsóknarstarfs skólans. 29. október 2010 06:00
Skoðun Meiri gæði og mun minni álögur - Hveragerðisleiðin í leikskólamálum Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir,Sandra Sigurðardóttir,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Halldór Benjamín Hreinsson,Njörður Sigurðsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg stígur fyrsta skrefið í snjallvæðingu umferðarljósa! Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar
Skoðun Framtíðin í fyrsta sæti – mikilvægi forgangsröðunar á tillögum Kópavogsbæjar í grunnskólamálum Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar
Skoðun Þéttingarstefnan hefur brugðist og Dóra breytir um umræðuefni Aðalsteinn Haukur Sverrisson skrifar