Skoðun

Staða ungs fólks áhyggjuefni

Erla Ósk Ásgeirsdóttir skrifar


Atvinnuleysi meðal ungs fólks er áhyggjuefni. Við erum að missa unga fólkið af landi brott en flestir þeirra sem flust hafa í burtu eru á aldrinum 25–29 ára sem er einmitt fjölmennasti aldurshópurinn á atvinnuleysisskrá, eða um 30,5% allra atvinnulausra. Þetta er verulegt áhyggjuefni enda mannauðurinn ein helsta auðlind okkar. Þessar tölur eru skýr skilaboð um að ungt fólk er að sækja sín atvinnutækifæri utan landsteinanna sem þýðir aftur að fjöldi fólks metur það svo að það sé ákjósanlegra að búa annars staðar.

Ísland á að vera ákjósanlegur staður fyrir ungt fólk að búa á og við verðum að búa svo um hnútana að það finni kröftum sínum farveg hér heima. Atvinnumálin þola enga bið, ef ekkert verður að gert blasir við að þeim mun fjölga sem velja að flytjast af landi brott. Við stöndum frammi fyrir því að aldrei hafa jafn margir flutt frá landinu og á síðasta ári en 4.835 fleiri fluttu frá landinu en til þess. Næstflestir brottfluttir umfram aðflutta voru árið 1887.

Ef opinberar spár ganga eftir munu Íslendingar þurfa að horfast í augu við aukið atvinnuleysi á árinu verði ekki gripið í taumana. Ef ekkert verður að gert mun atvinnuleysi aukast í 10-11% á árinu. Þróunin á vinnumarkaðinum er grafalvarleg en samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar fækkaði störfum um 11 þúsund á milli áranna 2008-2009 og meðalvinnustundum fækkaði um rúmlega 10% sem gefur sterka vísbendingu um minni verðmætasköpun í hagkerfinu.

Við verðum öll að leggja okkar af mörkum í uppbyggingu atvinnulífsins og samfélagsins því nú ríður á að sköpuð verði ný störf og atvinnuleysi útrýmt. Efnahagsleg endurreisn hefur gengið hægar en vonir stóðu til. Það er því löngu orðið tímabært að stjórnmálamenn horfi til framtíðar og vinni saman að því finna lausnir á þeim vanda sem við blasir og móti skýra framtíðarsýn þannig að Ísland verði áfram ákjósanlegur staður fyrir ungt fólk að búa á.

Höfundur er varaþingmaður.



Skoðun

Skoðun

Takk Trump!

Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Sjá meira


×