Enn einn sölumaður siglir í bæinn Friðrik Indriðason skrifar 15. mars 2010 19:49 Það var í þessum skrifuðu orðum að upplýsa á RUV að Rússinn Alex Jurshevski hafi reynt að ráða sig í starf hjá hinu opinbera. Sjálfur segist hann vera sérfræðingur í „skuldastjórnun". Hið opinbera taldi ekki þarft að bæta einum grilljóna á mánuði manni við jötuna við þá iðju. Alex þessi talaði sig þá inn á viðtal í Silfri Egils þar sem hann tjáði stjórnenda þáttarins að allt færi til andskotans á Íslandi ef ekki væri farið að ráðum hans. Mætti kannski segja að viðtalið í Silfri Egils hafi verið einhverskonar postmodernísk endurhverf atvinnuumsókn hjá Alex. Þeim sem þjást af illvígri þjóðremu í bloggheimum þótti sem Alex væri manna af himnum. Þarna var loksins kominn Rússi með rök fyrir því afhverju við sem þjóð ættum að segja „fokkaðu þér" við umheiminn. Þetta væri allt spurning um „skuldastjórnun" og Alex væri jú sérfræðingur í slíku. Alex láðist að vísu að geta að það sem kallast „skuldastjórnun" í hans huga er í raun að lýsa því yfir að við séum gjaldþrota sem þjóð. Það er því rétt hjá Gylfa Magnússyni efnahags- og viðskiptaráðherra að segja að það sem Alex hefði fram að færa væri „algert rugl". Því miður hefur Egill Helgason, stjórnandi Silfurs Egils, fallið í þá gryfju að verja Alex enda var hann jú stjarnan í síðasta þætti Egils. Eftir allt bloggið um íslensk efnahagsmál ætti Agli að vera það fullkunnugt að áætlun og lán í gegnum Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS) eru ekki til að auka við skuldir landsins. Áætlun miðar að því að létta á skuldabyrðinni. Það liggur fyrir að fyrir lok næsta árs þarf ríkissjóður að greiða 1.3 milljarða evra af erlendum lánum, eitthvað yfir 200 milljarða kr. Ríkissjóður á ekki fé til að greiða þetta upp nema tæma gjaldeyrisvarasjóðinn. Þetta þarf að endurfjármagna. Og hverjir eru möguleikarnir á því? Með samstarfi við AGS er hægt að endurfjármagna þessa upphæð á einum bestu vöxtum sem eru í boði fyrir Ísland í dag, þökk sé aðkomu Norðurlandanna. Hinn möguleikinn er að vogunarsjóðir eða álíka áhættufjárfestar veiti lán á hærri vöxtum sem þar að auki yrðu með vel yfir 4% álagi því þeir myndu þurfa að taka út skuldatryggingar á sínum lánum. Það er hryggilegra en tárum taki að í þessari stöðu eru einhverjir Vinstri grænir sem telja að brottför AGS af landinu sé einhver áfangasigur í baráttunni við heimskapitalismann. Þetta fólk ætti heldur að byrja að berjast fyrir framtíð eigin þjóðar.Höfundur er blaðamaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Skoðun Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar