Snorri: Alveg eins gott að mæta Frökkunum núna Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Vín skrifar 29. janúar 2010 19:00 Snorri skorar gegn Norðmönnum í gær. Mynd/DIENER
Snorri Steinn Guðjónsson segir það alveg eins gott að mæta Frökkum næst á EM í handbolta í Austurríki. Vísir hitti á Snorra á hóteli íslenska liðsins í dag og sagðist hann vera nokkuð hress, þrátt fyrir lélegan nætursvefn. „Ég svaf ekki nógu vel í nótt,“ sagði hann. „Þetta er líka svo lélegt hótel,“ bætti hann við í kaldhæðnistón. „En það var líka gott að vakna og hugsa til þess að við séum ekki að fara að spila um fimmta sætið eins og Danirnir.“ Eins og kunnugt er þá keppir Ísland við Frakkland í undanúrslitum Evrópumótsins en leikurinn fer fram á morgun. „Það er allt í lagi að mæta Frökkunum núna. Ef við ætlum alla leið í þessu móti þarf að spila við Frakka og þá er alveg eins gott að gera það núna.“ „En Frakkar eru með lið í heimsklassa og voru fyrirfram sigurstranglegastir á þessu móti. Það verður auðviðtað rosalegt verkefni að mæta Frökkum í undanúrslitum stórmóts og við þurfum að eiga toppleik gegn þeim. En við hefðum líka þurft að eiga toppleik gegn Pólverjum.“ Ísland mætti Frakklandi í úrslitaleik Ólympíuleikanna í Peking og segir Snorri að strákarnir vilji að sjálfsögðu kvitta fyrir það tap. „Úrslitaleikurinn var okkar lélegasti leikur í Peking og við lærðum mikið af honum. En við höfum unnið Frakka áður á stórmóti og getum gert það aftur.“ Rétt eins og Frakkar þá byrjaði íslenska liðið nokkuð rólega á þessu móti og gerði jafntefli við Serba og Austurríkismenn eins og frægt er. Síðan þá hefur liðið unnið þrjá leiki og gert eitt jafntefli. „Við erum gríðarlega ánægðir með að hafa komið svo sterkir til baka eftir lélega byrjun. Við vorum svo sem ekkert að spila hræðilega en hefðum getað spilað betur.“ „Svo kom leikurinn gegn Dönum þar sem við spiluðum vel. Við höfum náð að fylgja því eftir í milliriðlinum og erum á frábæru róli.“ „Það er líka lítið sem ekkert um meiðsli og þó svo að menn séu vissulega þreyttir þá eru þeir ferskari en oft áður. Það hafa verið fleiri frídagar á þessu móti en á fyrri stórmótum. Þetta lítur því vel út fyrir morgundaginn.“ Frakkland og Pólland léku sína leiki í milliriðlinum í Innsbruck sem er í tæplega 500 kílómetra fjarlægð frá Vínarborg. „Það er kostur að þurfa ekki að eyða frídeginum í ferðalag. Ég held að Frakkar verði þó klárir í slaginn á morgun. Þeir eiga nú möguleika að geta kallað sig heims-, Evrópu- og Ólympíumeistara og mig grunar að það sé þeirra markmið að ná því.“
Mest lesið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Íslenski boltinn Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Milner aftur til Liverpool Enski boltinn VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Enski boltinn Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Dagskráin: Stórleikur á Englandi og bikarmeistarar í dalnum Sport Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið Fótbolti „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Íslenski boltinn Coutinho og Neymar sameinaðir á ný Fótbolti Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Enski boltinn Fleiri fréttir Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Sjá meira