Hvar í helv... er klósettpappírinn? Óli Tynes skrifar 30. mars 2010 13:45 WHAT?????
Starfsmenn í Stjórnsýslumiðstöð breska ríkisins í West Midlands eru öskureiðir yfir því að búið er að setja upp tímamæla sem slökkva ljós á klósettum miðstöðvarinnar eftir tíu mínútur. Þetta er gert til þess að spara orku. Starfsmaður sem breska blaðið Daily Telegraph talaði við sagði að þeir hefðu fullan skilning á því að ríkisstjórnin vilji spara orku. Starfsmenn hafi hinsvegar þegar verið búnir að bregðast við þessu með því að gera að reglu að slökkva alltaf ljósin þegar þeir yfirgæfu klósettin.Frá hvaða plánetu?Þessi aðgerð væri bæði niðurlægjandi og skammarleg. -Geturðu ímyndað þér hversu niðurlægjandi það er að sitja inni í básnum þegar ljósin allt í einu slökkna? Þú þarft að fálma um í myrkrinu til þess að finna það sem þig vanhagar um. Svo þarft þú að þreifa þér leið út að hurðinni þar sem slökkvarinn er. Og þín heitasta ósk er að það komi ekki einhver inn og sjái þig með buxurnar á hælunum. Talskona stjórnsýslumiðstöðvarinnar sagði að verið væri að framfylgja stefnu ríkisstjórnarinnar um að minnka orkunotkun eins og mögulegt sé. Talskona Samtaka skattgreiðenda gefur lítið fyrir þá skýringu: -Frá hvaða plánetu eru eiginlega ríkisforstjórarnir ef þeir halda að þessi hlægilegi tímamælir samsvari orkusparnaði? -Kannski hafa ríkisforstjórarnir ekki nóg að gera ef þeir eru að dreyma upp sparnaðarleiðir sem líkjast meira prakkarastrikum.
Best of Óli Tynes Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira