Uppbygging gjaldeyrisforðann gengur hægar en ráðgert var 14. janúar 2010 12:05
Uppbygging gjaldeyrisforða landsins gengur hægar en áætlanir gerðu ráð fyrir. Af þessum sökum eru talsverðar líkur á að afnám gjaldeyrishaftanna dragist á langinn.Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar er greint frá því að gjaldeyrisforði Seðlabankans var í lok desember síðastliðinn ríflega 490 milljarðar kr. og hækkaði um 87 milljarða kr. milli mánaða.Skýrist hækkunin að mestu að í mánuðinum var fyrsti hluti láns frá Norðurlöndunum greiddur til Íslands sem samið var um í tengslum við efnahagsáætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Um var að ræða 300 milljónir evra og þar af tók Seðlabankinn 81 milljón evra að láni eða um 14,5 milljarða íslenskra kr. hjá norska seðlabankanum. Kemur þetta fram í gögnum sem Seðlabankinn birti í gær.Er gjaldeyrisforðinn nú um þriðjungur af áætlaðri landsframleiðslu síðastliðins árs en við upphaf þess árs nam hann 429 milljörðum kr. Mun hægar hefur gengið að byggja upp gjaldeyrisforðann en upphaflega gert var ráð fyrir sem má einna helst rekja til þess að enn hefur ekki tekist að komast að niðurstöðu um Icesave-málið sem aftur hefur valdið því að ýmsu er tengist uppbyggingastarfinu og efnahagsáætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) hefur dregist á langinn. Þannig var lokið við fyrstu endurskoðun efnahagsáætlunarinnar í lok október, en upphaflega var reiknað með að sú endurskoðun yrði í höfn í febrúar 2009.Enn eru ódregin umsamin lán að fjárhæð tæplega 2,3 milljarðar evra frá Norðurlöndunum, AGS og Póllandi sem eru háð því að lausn komist í Icesave málinu. En sér ekki fyrir endann á því máli og eru því líkur talsverðar á því að áform um að styrkja gjaldeyrisforðann frekar komi til með að dragast enn á langinn. Með styrkingu forðans er búið í haginn fyrir afnám gjaldeyrishaftanna sem hér hafa verið við lýði frá hruni bankanna í október 2008.
Mest lesið Vaka stýrir Collab Viðskipti innlent Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Nova eignast tuttugu prósenta hlut í Dineout Viðskipti innlent Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Viðskipti innlent Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Viðskipti innlent Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Viðskipti erlent Slæm vinnustaðamenning: Minni afköst, verri frammistaða, fleiri fjarvistir Atvinnulíf Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Viðskipti innlent Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaka stýrir Collab Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Sjá meira