Besta byrjun Strákanna okkar á landsliðsári síðan 1964 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. janúar 2010 13:00 Arnór Atlason stekkur hér upp á móti spænsku vörninni í gær. Mynd/AFP
Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann 30-27 sigur á Spánverjum í gær í undanúrslitum hraðmótsins í Frakklandi og hefur þar með unnið alla fjóra leiki sína á árinu 2010. Strákarnir okkar hafa ekki byrjað landsliðsár betur í heil 46 ár eða síðan að íslenska landsliðið sló í gegn á HM í Tékkóslóvakíu 1964. Íslenska liðið vann tvo glæsilega sigra á Þjóðverjum í æfingaleikjum í Þýskalandi um síðustu helgi og Portúgalar voru síðan lagðir með tíu marka mun í Laugardalshöllinni á miðvikudagskvöldið. Ísland vann síðan Spán í gær og tryggði sér sæti í úrslitaleiknum á móti Frökkum í dag. Í öllum fjórum leikjum íslenska liðsins sem hafa allir unnist með þremur mörkum eða meira hefur íslenska liðið skoraði 30 mörk eða meira á sama tíma og mótherjarnir hafa ekki náð að brjóta 30 marka múrinn. Íslenska karlalandsliðið vann eins og áður sagði einnig fjóra fyrstu leiki sína árið 1964. Liðið vann þá tvo auðvelda sigra á Bandaríkjamönnum í æfingaleikjum á Keflavíkurflugvelli áður en var lagt í hann á HM í Tékkóslóvakíu. Íslenska liðið vann síðan tvo fyrstu leiki sína á HM í Tékkóslóvakíu, fyrst 16-8 sigur á Egyptum og svo einn glæsilegasta sigur liðsins í sögunni þegar Svíar voru lagðir af velli 12-10. Íslenska liðið tapaði síðan 12-21 fyrir Ungverjum og það stóra tap sá til þess að liðið komst ekki áfram í milliriðilinn. Þetta er líka aðeins í sjöunda skiptið sem íslenska karlalandsliðið fer taplaust í gegnum fjóra fyrstu leiki ársins en það gerðist síðast árið 1992 og þar á undan árið 1984. Byrjunin á árinu 1964 32-16 sigur á Bandaríkjunum í æfingaleik (22. febrúar) 32-14 sigur á Bandaríkjunum í æfingaleik (23. febrúar) 16-8 sigur á Egyptalandi á HM (6. mars) 12-10 sigur á Svíþjóð á HM (7. mars) Byrjunin á árinu 2010 32-28 sigur á Þjóðverjum í æfingaleik (9. janúar) 33-29 sigur á Þjóðverjum í æfingaleik (10. janúar) 37-27 sigur á Portúgal í æfingaleik (13. janúar) 30-27 sigur á Spáni í æfingamóti (16. janúar) Flestir sigrar í fyrstu fjórum landsleikjum ársins 4 - 1964 4 - 2010 3 - 1970 2 - 2006 2 - 1973 Fæst töp í fyrstu fjórum landsleikjum ársins 0 - 1964 (4 sigrar) 0 - 1972 (2 sigrar, 2 jafntefli) 0 - 1973 (2 sigrar, 2 jafntefli) 0 - 1974 (3 sigrar, 1 jafntefli) 0 - 1984 (3 sigrar, 1 jafntefli) 0 - 1992 (3 sigrar, 1 jafntefli) 0 - 2010 (4 sigrar)
Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Íslenski boltinn Hljóp á hraðasta tíma ársins Sport Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira